16 prósent fráveitna á Íslandi hafa viðunandi hreinsun skolps

83 fráveitustöðvar ættu að hafa viðunandi skolphreinsun en aðeins 13 uppfylla þær kröfur í raun, samkvæmt nýrri stöðuskýrslu Umhverfisstofnunar.

Saurgerlamengun mældist í Nauthólsvík í sumar vegna bilunar í skolphreinsistöð í nágreninu.
Saurgerlamengun mældist í Nauthólsvík í sumar vegna bilunar í skolphreinsistöð í nágreninu.
Auglýsing

Aðeins 13 frá­veitur á öllu land­inu höfðu við­un­andi skolp­hreinsun árið 2014, af þeim 83 sem áttu að hafa hana. Þetta kemur fram í stöðu­skýrslu Umhverf­is­stofn­unar um frá­rennsl­is­mál á Íslandi.

Í skýrsl­unni segir jafn­framt að upp­lýs­ingar og gögn skortir um stöðu og til­högun frá­rennsl­is­mála á Íslandi. Það helg­ast af lélegum skilum upp­lýs­inga frá eft­ir­lits­að­il­um. Umhverf­is­stofn­un, sem tekur við gögn­unum og vinnur stöðu­skýrslur fyrir allt land­ið, setur þess vegna fyr­ir­vara um þær álykt­anir sem dregnar eru í skýrsl­unni vegna gæða gagn­anna.

Lang mest skolp fellur til á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 60% alls skolps á land­inu sem varð til árið 2014 var hreinsað í hreinsi­stöðvum sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við Ána­naust og Kletta­garða. Þar eru starf­ræktar fyrsta þreps hreins­un­ar­stöðv­ar. Í skýrslu umhverf­is­stofn­unar segir að hreins­unin þar „upp­fyllir að öllum lík­indum ekki þær kröfur sem gerðar eru til eins þreps hreins­unar í reglu­gerð um frá­veitur og skolp.“ Þetta sé hins vegar skil­grein­ing­ar­at­riði. Ítar­legar er fjallað um það í skýrsl­unni.

Auglýsing

Í sumar komust skolp­mál í Reykja­vík í hámæli þegar neyð­ar­loki í skolp­hreinsi­stöð borg­ar­innar bil­aði með þeim afleið­ingum að mikið magn óhreins­aðs skolps flæddi út í hafið við Faxa­skjól í Reykja­vík. Í fréttum var haft eftir Hólm­fríði Sig­urð­ar­dótt­ur, umhverf­is­stjóra Orku­veitu Reykja­vík­ur, að þetta væri lengsta og alvar­leg­asta bilun sem orðið hefur á skolp­hreinsi­kerf­inu frá upp­hafi.

Í skýrslu Umhverf­is­stofn­unar sem birt var í dag kemur fram að aðeins 13 frá­veitur höfðu við­un­andi hreinsun af þeim 83 sem ættu að hafa hana miðað við gögnin frá árinu 2014. Við­un­andi hreinsun er ákveðin í starfs­leyfi. Við­un­andi hreinsun skolps er hreinsun með við­ur­kenndum hreinsi­bún­aði í sam­ræmi við ákvæði reglu­gerðar um frá­veitur og skolp svo gæða­mark­miðum sé náð.

Skýrslu­höf­undar telja hins vegar að „fremur litlu hafi verið áorkað í frá­veitu málum síðan síð­asta stöðu­skýrslan var gefin út árið 2010 og mikið vantað upp á að ákvæði reglu­gerðar um frá­veitur og skolp væri upp­fyllt. Það fyr­ir­komu­lag sem stuðst er við í dag hefur ekki skilað þeim til­ætl­aða árangri sem kraf­ist er í lögum og reglu­gerð­u­m.“

Umhverf­is­stofnun leggur til eft­ir­far­andi úrræði til úrbóta.

Meðal þeirra úrbóta sem lagðar eru til

  • Skýra þarf ábyrgð­ar­skipt­ingu milli sveit­ar­fé­laga, fyr­ir­tækja, heim­ila og eft­ir­lits­að­ila. „M.a. þarf að skýra hvort og þá hvernig þving­un­ar­úr­ræðum verði beitt gagn­vart þeim sveit­ar­félögum sem ekki upp­fylla sínar laga­legu skyld­ur. [...] Tryggja þarf einnig að við­kom­andi aðilar geti staðið undir ábyrgð sinni sam­kvæmt lögum og reglu­gerð­u­m.“
  • Gera þarf heild­stæða aðgerða­á­ætl­un, sam­kvæmt lögum um stjórn vatna­mála.
  • Mik­il­vægt er að koma skolp­hreinsun í stærri þétt­býlum í við­un­andi horf sem fyrst enda runnu síð­ustu frest­irnir út í lok árs 2005.
  • Frek­ari og ítar­legri gagna­söfnun um frá­veitu­mál væri æski­legt að koma upp.
  • Átak verði gert í því að fá sveit­ar­fé­lög til að sækja um starfs­leyfi fyrir frá­veitum og að starfs­leyf­is­hafar sinni innra eft­ir­liti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent