Aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins aukið

Búið er að opna vefinn opnirreikningar.is þar sem hægf verður að nálgast yfirlit yfir greidda reikninga úr bókhaldi ráðuneyta. Vefurinn átti upphaflega að opna í mars.

Það er fjármála- og efnahagsráðuneytið sem stendur að verkefninu. Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Það er fjármála- og efnahagsráðuneytið sem stendur að verkefninu. Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins hefur verið bætt með því að vef­ur­inn opn­ir­reikn­ing­ar.is hefur verið tekin í gagn­ið. Á honum er hægt að skoða yfir­lit yfir greidda reikn­inga úr bók­haldi ráðu­neyta nálægt raun­tíma. Vef­ur­inn er upp­færður mán­að­ar­lega og fyrsti birt­ing­ar­mán­uð­ur­inn er ágúst 2017. Gert er ráð fyrir að stofn­anir í A-hluta rík­is­sjóðs komi inn í verk­efnið í áföng­um. Þegar verk­efnið verður að fullu komið til fram­kvæmda nemur heild­ar­um­fang upp­lýs­inga á vefnum um 45 millj­örðum króna á ári.

Í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins seg­ir: „Þá er unnið að því að birta mán­að­ar­legt bók­hald rík­is­ins, ráðu­neyta og stofn­ana með skýrum og mynd­rænum hætti. Með þeirri birt­ingu verður hægt að skoða gjöld og tekjur út frá ráðu­neyt­um, stofn­unum eða mál­efna­svið­um, allt niður á ein­stök verk­efni. Hægt verður að skoða raun­út­gjöld og bera saman við áætluð útgjöld í fjár­lögum árs­ins. Er sú birt­ing aukin þjón­usta við almenn­ing frá því að rík­is­reikn­ing­ur.is var opn­aður árið 2014, en þar er birt sund­ur­liðun á tekjum og gjöldum rík­is­ins eftir árum og nær birt­ingin aftur til árs­ins 2004.“

Átti að opna í mars

Rík­­is­­stjórnin greindi frá því í byrjun febr­úar að hún ætl­aði að stór­bæta aðgengi almenn­ings að fjár­­hags­­upp­­lýs­ingum rík­­is­ins, og myndi stíga stórt skref í þá átt um miðjan mars þegar vef­­ur­inn opn­ir­reikn­ing­ar.is yrði opn­að­­ur. Þar yrði hægt að nálg­­ast greiðslu­­upp­­lýs­ingar um tvö hund­ruð stofn­ana.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu sagð­i:„Á vefnum munu árlega birt­­ast á bil­inu 300-400 þús­und reikn­ingar vegna kaupa rík­­is­ins á vörum og þjón­­ustu. Hægt verður að leita að reikn­ingum á vefnum með ýmsum leið­um, t.d. út frá stofn­unum eða teg­und kostn­að­­ar. Á vefnum verða enn­fremur birt skönnuð fylg­i­skjöl með reikn­ing­um, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verk­efn­i. Sér­­stak­­lega hefur verið hugað að örygg­is­­málum og sjón­­­ar­miðum um per­­són­u­vernd og sér­­stakar síur koma í veg fyrir að við­­kvæmar per­­són­u­­upp­­lýs­ingar birtist, svo sem vegna lækn­is­heim­­sókna, bóta eða launa.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent