Ríkislögreglustjóri vill fresta ákvörðun um að senda Abrahim og Haniye úr landi

Formgalli á birtingarvottorði er ástæða þess að ákvörðuninni verður mögulega frestað.

Haniye Maleki
Auglýsing

Rík­is­lög­reglu­stjóri vill láta fresta ákvörðun um að senda feðginin Abra­him og Haniye úr landi.

Til stendur að senda hina ell­efu ára gömlu Haniye Maleki úr landi á fimmt­u­dag ásamt föður sín­­um.

Þeim var til­­kynnt um þetta á fundi með stoð­­deild rík­­is­lög­­reglu­­stjóra í húskynnum Út­­lend­inga­­stofn­unar í morg­un, en þau verða send til Þýska­lands. Ástæða þess að mögu­leiki er á frestun er sú að Rík­is­lög­reglu­stjóri telur form­galla hafa verið á birt­ing­ar­vott­orði gagn­vart Abra­him og Haniye og hefur farið fram á frest­un, en Útlend­inga­stofnun hefur ekki tekið afstöðu til máls­ins.

Auglýsing

Sig­ríð­ur And­er­­sen dóms­­­mála­ráð­herra sagði um helg­ina að ákvörðun um brott­vísun stúlkn­anna yrði ekki end­­­ur­­­skoð­uð. Það kæmi ekki til greina. Í sam­tali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að end­­­ur­­­skoða mál sem dúkka hérna til­­­vilj­ana­­­kennt upp í umræð­unni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráð­herra að taka fram fyrir hend­­­urnar á sjálf­­­stæðri stjórn­­­­­sýslu­­­stofnun eins og kæru­­­nefnd í málum sem hafa fengið tvö­­­falda máls­­­með­­­­­ferð hér á land­i,“ sagði Sig­ríð­ur.

Logi Ein­­ar­s­­son, for­­maður Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, hefur sent bréf til dóms­­mála­ráðu­­neyt­is­ins, Útlend­inga­­stofn­un­­ar, kæru­­nefndar útlend­inga­­mála og alþjóða­­deildar Rík­­is­lög­­reglu­­stjóra þar sem hann óskar eftir því að ákvörðun um að vísa Haniye Maleki og Abra­him Maleki úr landi verði ekki fram­­kvæmd á fimmt­u­dag líkt og stendur til. Ástæðan er sú að hann, og aðrir þing­­menn, ætla að leggja fram frum­varp um að veita þeim feðginum rík­­is­­borg­­ara­rétt um leið og Alþingi verður sett á morg­un, 12. sept­­em­ber. 

Logi segir í stöð­u­­upp­­­færslu á Face­­book að það sé „eðli­­legt og mann­úð­­legt að þau verði ekki flutt úr landi fyrr en alþingi, sem hefur heim­ild að lögum til veit­ingu rík­­is­­borg­­ara­rétt­­ar, hefur fjallað um mál­ið. Þá væri með brott­vísun þeirra nú brotið gegn með­­al­hófi. Nefna má að for­­dæmi er fyrir því að Alþingi veiti rík­­is­­borg­­ara­rétt með skjótum hætti, t.d. þegar Bobby Fischer fékk rík­­is­­borg­­ara­rétt árið 2005. Þá afgreiddi Alþingi málið á innan við sól­­­ar­hring.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent