Magnús Garðarsson, fyrrverandi forstjóri og stofnandi United Silicon, segir að það sé ekki satt að hann hafi dregið að sér um hálfan milljarð króna úr félaginu. Hann segir að þetta sé „náttúrulega bara stærsta bull og vitleysa sem ég hef nokkurn tímann lesið“ og að það hafi ekki farið neinir peningar úr félaginu. Hann segist vera að skrifa fréttatilkynningu um málið í samstarfi við nýjan lögmann sinn. Þetta kemur fram á vef mbl.is.
Magnús er grunaður um að hafa svikið út úr fyrirtækinu yfir hálfan milljarð króna. Samkvæmt heimildum Kjarnans bárust United Silicon reikningar sem sagðir voru vera frá fyrirtækinu Tenova, sem framleiddi ljósbogaofn verksmiðjunnar. Þeir reikningar voru greiddir en við endurskipulagningu United Silicon, sem nú stendur yfir, hafi komið í ljós að þeir væru alls ekki frá Tenova. Þess í stað hafi fjármunirnir sem greiddir voru ratað inn á reikning annars félags. Stjórn United Silicon telur að Magnús Garðarsson hafi haft umsjón með því félagi.
Stjórn United Silicon tilkynnti um það í gær það hún hefði í samráði við lögmann sinn og aðstoðarmann í greiðslustöðvun sent kæru til Embættis héraðssaksóknara um mögulega refsiverða háttsemi Magnúsar. Í tilkynningu segir að kæran byggi á „ grun um stórfelld auðgunarbrot og skjalafals allt frá árinu 2014 og er lögð fram í samráði við aðra hagsmunaaðila. Upplýsingarnar sem nú koma fram eru afrakstur af vinnu við endurskipulagningu félagsins sem leidd hefur verið af nýrri stjórn sem tók við í febrúar. Hinn grunaði hefur enga aðkomu haft að rekstri eða stjórnun félagsins síðan í mars. Stjórn félagsins mun vinna með yfirvöldum að rannsókn málsins svo að upplýsa megi það sem fyrst.“
United Silicon rekur kísilmálmverksmiðju í Helguvík. Félagið óskaði eftir greiðslustöðvun 14. ágúst síðastliðinn. Ástæðan eru erfiðleikar í rekstri kísilmálmverksmiðjunni sem hóf framleiðslu í nóvember 2016, og rekja má til síendurtekinna bilana í búnaði sem hafa valdið félaginu miklu tjóni. Nýfallinn gerðardómur í deilu félagsins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félagsins. Samkvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn milljarð króna. Greiðslustöðvun fyrirtækisins var framlengd í vikunni og gildir nú fram í desember.
Á meðal hluthafa og lánveitenda þess eru Arion banki og íslenskir lífeyrissjóðir. Alls nam fjárfesting lífeyrissjóða í verkefninu um 2,2 milljörðum króna. Þar af fjárfestu þrír lífeyrissjóðir sem eru í stýringu hjá Arion banka í verkefninu fyrir .1375 milljónir króna. Frjálsi lífeyrissjóðurinn lagði til langstærstan hluta þeirrar upphæðar, eða 1.178 milljónir króna. Hinir tveir sjóðirnir eru Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA) og Lífeyrissjóð starfsmanna Búnaðarbanka Íslands (LSBÍ). Arion banki rekur alla sjóðina þrjá, starfsfólk bankans gegnir stjórnunarstöðum í þeim og þeir eru til húsa í höfuðstöðvum hans í Borgartúni.
Alls skuldar United Silicon Arion banka um átta milljarða króna. Auk þess færði bankinn niður virði 16,3 prósenta hlutafjáreign sinnar í fyrirtækinu í hálfsársuppgjöri sínu í síðasta mánuði.