Páfinn segir efasemdamönnum til syndanna

Maðurinn er heimskur án þekkingar, segir Frans páfi.

Frans páfi hefur látið til sín taka í loftslagsmálum og hvatt ráðamenn ríkja heims til þess að bregðast við vandanum sem steðjar að mannkyninu.
Frans páfi hefur látið til sín taka í loftslagsmálum og hvatt ráðamenn ríkja heims til þess að bregðast við vandanum sem steðjar að mannkyninu.
Auglýsing

Frans páfi hefur gagn­rýnt þá sem telja lofts­lags­breyt­ingar ekki eiga sér stað. Páfi segir að sagan muni dæma þá sem grípa ekki í taumana til þess að stemma stigu við hlýnun jarðar og útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Frá þessu er greint á vef AP frétta­stof­unn­ar.

Páfi var spurður út í afstöðu sína til lofts­lags­breyt­inga í tengslum við felli­bylj­ina sem lagt hafa borgir og bæi við Mexík­óflóa í rúst á und­an­förnum vik­um. Frans páfi var á ferð frá Kól­umbíu í Suð­ur­-Am­er­íku á sunnu­dag og átti eftir að fljúga yfir þau svæði sem verst hafa orðið úti.

„Þeir sem hafna þessu verða að fara til vís­inda­manna og ræða við þá. Vís­inda­menn­irnir tala mjög skýrt,“ sagði Frans páfi og bætti við að vís­inda­menn hafi þegar útli­stað hvað það er sem þurfi að ger­ast svo hægt sé að tempra áhrif lofts­lags­breyt­inga. Ein­stak­lingar og stjórn­mála­menn hafa, að sögn páfa, „sið­ferð­is­lega skyldu“ um að leggja sitt af mörk­um.

Auglýsing

„Þetta eru ekki skoð­anir sem gripnar eru úr lausu lofti. Þær eru mjög skýr­ar. Leið­togar ríkja munu ákveða hvað verður gert og sagan mun dæma þær ákvarð­an­ir,“ sagði Páfi.

Frans páfi hefur áður látið til sín taka í tengslum við lofts­lags­mál og nátt­úru­vernd. Hann hefur skrifað heilt umburð­ar­bréf um það hvernig fátækir líði mest fyrir breyt­ingum í lofts­lagi jarðar og auk­inni sókn í auð­lindir jarð­ar.

„Óskyn­ugur er hvör sá maður án þekk­ing­ar,“ sagði Frans páfi og vitn­aði í Gamla testa­mentið. Hann beindi orðum sínum að til þeirra sem efast um lofts­lags­breyt­ingar eða frestað við­bragði við þeim.

Frans páfi ræddi við blaðamenn í flugvél á dögunum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent