Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, var einn þeirra sem skrifuðu undir meðmælabréf með uppreist æru Hjalta Sigurjóns Haukssonar.
Hjalti fékk fimm og hálfs árs fangelsisdóm árið 2004 fyrir gróf og ítrekuð kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Brotin voru framin meðan stúlkan var fimm til sautján ára gömul.
Benedikt staðfestir þetta í yfirlýsingu.
Yfirlýsingin er eftirfarandi.
Í ljósi alls þess sem fram hefur komið að undanförnu vil ég biðja þá sem um sárt eiga að binda vegna máls Hjalta Sigurjóns Haukssonar, afsökunar á því að hafa ljáð honum atbeina við umsókn um uppreist æru.
Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma tengdur kunningjafólki okkar hjóna frá skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst vegna fjárhagsmála eða í tengslum við atvinnuleit. Engin önnur tengsl hafa verið á milli okkar.
Á síðasta ári leitaði Hjalti til mín um meðmæli vegna uppreistar æru. Hann kom til mín með bréf, tilbúið til undirritunar. Ég skrifaði undir bréfið og hef ekki vitað af málinu síðan, fyrr en það kom til opinberrar umfjöllunar nú í sumar. Ég ræddi ekki meðmælabréfið við nokkurn mann, hvorki í stjórnkerfinu né annars staðar, og hef aldrei verið spurður frekar út í málið. Allur aðdragandi og umbúnaður málsins var sá að verið væri að ganga frá formsatriði fyrir umsókn til stjórnsýslunnar.
Ég hef aldrei litið svo á að uppreist æru væri annað en lagalegt úrræði fyrir dæmda brotamenn til að öðlast að nýju tiltekin borgaraleg réttindi. Sá hugur bjó ekki að baki að rétta stöðu Hjalta gagnvart fórnarlambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í augu við gjörðir sínar og iðrast þeirra.
Það sem átti hér að vera lítið góðverk við dæmdan mann hefur snúist upp í framhald harmleiks brotaþola. Á því biðst ég enn og aftur afsökunar.
Gögn verða birt
Dómsmálaráðuneytinu hefur verið gert, með úrskurði Úrskurðarnefndar um upplýsingarmál - eftir að fréttastofa RÚV kærði þangað neitun ráðuneytisins um að afhenda gögn - að birta upplýsingar um þá sem votta ábyrga hegðun. Til stendur að birta upplýsingar um votta þeirra sem hafa fengið uppreista æru, allt frá 1995, að því er ráðuneytið hefur staðfest.