Birgitta Jónsdóttir hættir

Þingflokksformaður Pírata ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu.

Kominn tími til að hætta. Birgitta Jónsdóttir á kosningakvöldi Pírata í fyrra.
Kominn tími til að hætta. Birgitta Jónsdóttir á kosningakvöldi Pírata í fyrra.
Auglýsing

„Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil, óháð lengd þessi,“ skrifar Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, á Face­book-­síðu sína í morg­un. Birgitta hygg­ist þess vegna ekki gefa kost á sér í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum sem vænt­an­lega verður boðað til vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórn­mál­um.

„Það er ekk­ert sem getur fengið mig til að skipta um skoð­un. Ég er snortin af þeirri bylgju hvatn­ingar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í gras­rót minn­i,“ skrifar Birgitta.

Hún var spurð að því í kvöld­fréttum RÚV í gær­kvöldi hvort hún ætl­aði að standa við orð sín og hætta. Þá sagð­ist hún eiga erfitt með að ganga á bak orða sinna en gaf ekki skýrt svar um hvort hún myndi hætta. Þeirri óvissu er hefur nú verið eytt.

Auglýsing

„Ástæða þess að ég hef ekki viljað koma með þessa yfir­lýs­ingu strax er ein­fald­lega vegna þess að þessu kjör­tíma­bili er ekki lok­ið, þrátt fyrir að núver­andi stjórn sé fall­inn,“ skrifar Birgitta enn frem­ur.

„En það hefur verið ákall um að ég svari skýrt og afger­andi, bæði meðal félags­manna sem og meðal okkar póli­tísku and­stæð­inga.“

„Ég vil ekki halda fólki í óþarfa óvissu. Ég mun að sjálf­sögðu þrátt fyrir að vera ekki í fram­boði í næstu kosn­ing­um, halda áfram að berj­ast fyrir rétt­lát­ara sam­fé­lagi og þeim breyt­ingum sem ég hef lagt þunga á að ná í gegn hér­lendis sem og erlend­is.“

Þing­maður síðan 2009

Birgitta var fyrst kjörin á þing í kosn­ing­unum 2009 þegar hún tók sæti sem Alþing­is­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður fyrir Borg­ara­hreyf­ing­una (síðar Hreyf­ing­una). Hún var svo kjörin á Alþingi að nýju fyrir Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2013 og svo aftur í kosn­ing­unum í fyrra.

Birgitta hefur verið leið­andi í starfi Pírata hér á landi og verið dyggur tals­maður þess að stjórn­ar­skrá Íslands verði end­ur­skoð­uð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent