Silicor Materials dómi ekki áfrýjað

Frestur til að áfrýja dómi, sem felldi úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar, rann út í gær.

grundartangi
Auglýsing

Hvorki íslenska ríkið né Sil­icor Mater­i­als hafa áfrýjað dómi Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur, frá 16. Júní á þessu ári, en með honum var fyrri ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar - um að kís­il­ver Sil­icor Mater­i­als þyrfti ekki að fara umhverf­is­mat - felld úr gildi.

Frestur til að áfrýja dómnum til Hæsta­réttar rann út í gær, og því stendur nið­ur­staðan um að umhverf­is­mat þurfi að fara fram.

Ákvörðun Skipu­lags­stofn­unar kom fram 25. apríl 2014, og var hún á þá leið að fyr­ir­huguð fram­kvæmd Sil­icor Mater­i­als Inc., á Grund­ar­tanga í Hval­fjarð­ar­sveit, skuli ekki háð mati á umhverf­is­á­hrif­um. Með dómnum var hún felld úr gildi, eins og áður seg­ir.

Auglýsing

Í dómnum var fall­ist á það með stefn­endum að „veru­legir ann­mark­ar“ hafi verið ákvörðun Skipu­lags­stofn­un­ar. Sagði meðal ann­ars í dómnum að margt í ákvörð­un­inni stæð­ist ekki skoð­un. „Varð­andi úrgangs­myndun er í ákvörð­un­inni lögð áhersla á að hlið­ar­af­urðir nýt­ist sem sölu­vara og því sé um „lokað fram­leiðslu­ferli“ að ræða. Að mati dóms­ins fær sú full­yrð­ing vart stað­ist í ljósi þess að fyrir liggur að ryk kemur til með að ber­ast frá verk­smiðj­unni út í and­rúms­loftið auk salt­vatns í frá­rennsli. Hins vegar ber ákvörð­unin ekki með sér að lagt hafi verið sjálf­stætt mat á eðli fram­kvæmd­ar­innar með til­liti til stærðar og umfangs henn­ar, nýt­ingar nátt­úru­auð­linda, þar á meðal orku­auð­linda, eða slysa­hættu sem hún skap­ar,“ segir í dómn­um. 

Sam­kvæmt áformum sem kynnt hafa ver­ið, er gert ráð fyrir að verk­smiðjan skapi um 450 störf full­búin og stuðli að efna­hags­legri upp­bygg­ingu á svæð­inu við Grund­ar­tanga.

Ekki liggur fyrir í hvaða far­veg und­ir­bún­ingur þessa verk­efnis fer nú, en gera má ráð fyrir að í ljósi þess að áfrýj­un­ar­frest­ur­inn rann út í gær, án þess dóm­ur­inn hafi farið inn á borð Hæsta­rétt­ar, að Sil­icor Mater­i­als þurfi að fara með verk­efnið í gegnum umhverf­is­mat. Það ferli getur verið tíma­frekt, en þó mis­jafn­lega eftir því hversu vinnan við það er ítar­leg.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent