Eigandi veitingastaðarins Sjanghæ á Akureyri, Rosita YuFan Zhang, hefur ákveðið að leita réttar síns Vegna umfjöllunar RÚV um veitingastaðinn og launmál starfsfólks þar. Hún hefur óskað eftir því við lögmann sinn, Jóhannes Má Sigurðarson, að undirbúa stefnu á hendur Rúv, fréttamanni og öðrum sem ábyrgð kunna að bera.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu, sem meðal annars hefur verið birt í heild sinni á vef mbl.is.„Þann 30. ágúst sl. var greint frá því í beinni útsendingu í kvöldfréttum Rúv að grunur léki á því að umbj. minn stundaði mansal, samkvæmt heimildum frá starfsmönnum stéttarfélagsins Einingar-Iðju á Akureyri. Greint var frá því að kínverskir starfsmenn staðarins, sem hafi fengið loforð um góða atvinnu og framtíðarbúsetu hér á landi gegn því að greiða háa fjárhæð fyrir, fengju greiddar 30 þ. krónur á mánuði, matarafganga að borða, og að fulltrúar stéttarfélagsins væru nú að skoða ásamt fleiri opinberum aðilum hver „finni fólkið í Kína og komi því hingað til lands”. Í samtali við fréttamann Rúv á Akureyri, þann 31. ágúst, að loknum fundi með umbj. mínum og Einingu-Iðju, upplýsti undirritaður lögmaður fréttamann um það að á fundinum hafi formaður stéttarfélagsins og verkefnastjóri vinnustaðaeftirlits fullyrt að rangt væri að heimildir þessar væru frá þeim komnar. Í kjölfarið ítrekaði stéttarfélagið þetta í yfirlýsingu sinni, dags. 5. september. Að auki var þar greint frá því að upplýsingar sem fram komu í þeim gögnum sem kallað var eftir stæðust almenna kjarasamninga og launataxta sem giltu á veitingahúsum,“ segir meðal annars í tilkynningunni.
Fréttastofa RÚV birti yfirlýsingu vegna þessarar umfjöllunar 14. september þar sem staðið var við fréttina, og hún sögð byggð á traustum heimildum.