Segir jafn mikilvægt að aðstoða sauðfjárbændur og að koma börnum í skjól

Þingmaður Framsóknarflokksins segir það ekki mikilvægasta þingmálið að koma börnum hælisleitenda í skjól. Jafn mikilvægt sé að koma til móts og bjarga fjölskyldum sauðfjárbænda og það sé að koma börnum hælisleitenda í skjól.

gunnar bragi
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist ekki geta tekið undir það að mik­il­væg­asta þing­málið sem þurfi að ræða fyrir þing­lok sé að koma börnum úr hópi hæl­is­leit­enda í skjól. Jafn mik­il­vægt sé að koma til móts við fjöl­skyldur og bú sauð­fjár­bænda vegna þess þess vanda sem sú grein standi frammi fyr­ir. Þetta sagði Gunnar Bragi í ræðu á Alþingi í dag.

Sam­komu­lag náð­ist í gær um að þing­lok yrðu að loknum þing­fundi í dag. Málin sem verða afgreidd fyrir þing­­lok snúa meðal ann­­ars að brott­­­­falli ákvæðis um upp­­­­reist æru, og frum­varp um bráða­birgða­á­­­kvæði í kosn­­­­inga­lög­um, og frum­varp um breyt­ing­ar á út­­­­lend­inga­lög­um, sem flutt verður af for­­­­mönn­um flokka sem það styðja.

Gunnar Bragi sagði í ræðu sinni að þetta væru allt mik­il­væg mál. „En ég spyr herra for­seti, hvernig stendur á því að við erum ekki hér með á þess­ari dag­skrá eitt brýn­asta málið sem leysa þarf úr í dag. Og ég tek ekki undir með hátt­virtum þing­flokks­for­manni Vinstri grænna að mik­il­væg­asta málið sé að koma börnum í skjól.[...]Það er mik­il­vægt mál. En það er jafn mik­il­vægt að koma til móts og bjarga fjöl­skyldum og búum sauð­fjár­bænda sem eng­inn hefur nefnt hér í þessum sal.“

Auglýsing

Gunnar Bragi kall­aði í kjöl­farið eftir því að fá að vita hverjir hefðu staðið í vegi fyrir því að leysa mál sauð­fjár­bænda. Um þau hefði verið rætt á fundi for­manna stjórn­mála­flokka þegar verið var að reyna að kom­ast að sam­komu­lagi um þing­lok en málið ekki feng­ist á dag­skrá.

Tapið metið á 1,9 millj­arða króna

Afurða­stöðvar til­kynntu bændum í sumar að verð fyrir lamba­kjöt myndi lækka um 5 pró­sent í haust. Sú lækkun kemur ofan á tíu pró­­sent lækkun sem átti sér stað í fyrra. Ástæðan er offram­­leiðsla. Mun meira væri fram­­leitt en eft­ir­­spurn er eft­­ir. Umfangið var talið vera um 1.200 tonn. Þetta leiðir til þess að laun sauð­fjár­­bænda stefna í að verða 56 pró­­sent lægri á þessu ári en í fyrra og nán­­ast öll sauð­fjárbú verða rekin með tapi. Sömu sögu er að segja með afurð­­ar­­stöðv­­­ar.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hafði lagt til að settar yrðu 650 millj­ónir króna í aðgerðir sem eiga að mæta bráða­vand­­anum og vinna að lausnum sem eiga að tryggja að þessi staða komi ekki upp aft­­ur. Til­­lög­­urnar þurfti hins vegar að sam­­þykkja á auka­að­al­fundi Lands­­sam­­taka sauð­fjár­­bænda þar sem skil­yrði stjórn­­­valda fyrir fjár­­út­­lát­unum köll­uðu á breyt­ingar á búvöru­­samn­ingi.

Þau útgjöld sem sam­­þykkt hafði verið að ráð­­ast í í rík­is­stjórn voru  þó ekki nálægt þeim 1,9 millj­­­arði króna sem Lands­­­sam­tök sauð­fjár­­­bænda hafa sagt að þurfti til að bæta sauð­fjár­­­bændum upp tap þeirra vegna fram­­­leiðslu árs­ins 2017. Sam­kvæmt búvöru­samn­ingi greiðir ríkið nú þegar fimm millj­arða króna á ári vegna sauð­fjár­rækt­ar.

Nú þegar rík­is­stjórnin er sprungin og kosn­ingar eru framundan er ljóst að ekk­ert verður af því að þessum til­lög­um, eða öðrum til að mæta bráða­vanda sauð­fjár­bænda, verður hrint í fram­kvæmd.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent