Guðlaugur Þór Þórðarson og Sigríður Á. Andersen munu leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í næstu alþingiskosningum. Guðlaugur Þór hefur verið heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar og Sigríður dómsmálaráðherra.
Þessi röð var samþykkt á fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, í dag.
Guðlaugur Þór mun leiða lista sjálfstæðismanna í Reykjavík norður og Sigríður í Reykjavík suður. Brynjar Níelsson mun skipa annað sætið í Reykjavík suður, en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir í Reykjavík norður.
Auglýsing
Reykjavík norður:
- Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, alþingismaður
- Birgir Ármannsson, alþingismaður
- Albert Guðmundsson, laganemi
- Herdís Anna Þorvaldsdóttir, varaborgarfulltrúi
Reykjavík suður:
- Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra
- Brynjar Níelsson, alþingismaður
- Hildur Sverrisdóttir, alþingismaður
- Bessí Jóhannsdóttir, framhaldsskólakennari
- Jóhannes Stefánsson, lögfræðingur