Kvika braut reglur um kaupauka og leggur bónuskerfið niður

Kvika banki mátti ekki greiða starfsmönnum sínum mörg hundruð milljónir króna í formi arðgreiðslna. Greiðslurnar brutu gegn gildandi reglum um kaupauka. Kvika vill ljúka málinu með sátt og greiðslu sektar.

Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku banka.
Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku banka.
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið telur að að Kvika banki hafi brotið gegn reglum um kaupauka með því að greiða starfs­mönnum sínum um 400 millj­ónir króna í arð­greiðslur vegna B-hluta­bréfa sem þeir áttu. Eft­ir­litið telur að greiðsl­urnar hafi í raun verið kaupaukar en ekki hefð­bundnar arð­greiðslur til hlut­hafa. Með þeim hafi Kvika farið fram hjá reglum um kaupauka fjár­mála­fyr­ir­tækja. Kvika hefur lagt niður kerfið og óskað eftir því að fá að ljúka mál­inu með sátt og greiðslu sekt­ar. Frá þessu er greint í Mark­aðn­um, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, í dag.

Gild­andi reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins um kaupauka­kerfi eru þannig að kaupaukar, oft einnig nefndir bónus­ar, mega ekki nema meiru en 25 pró­sent af árs­launum starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja og þá skuli ávallt fresta að lág­marki 40 pró­sent greiðsl­unnar í að minnsta kosti þrjú ár.

Kvika banki hefur viljað ekki upp­­lýsa um hverjir eigi B-hluta­bréf í bank­an­­um. Ákveðið var á síð­­asta aðal­­fundi Kviku að B-hlut­haf­­ar, sem sam­­kvæmt upp­­lýs­ingum Kjarn­ans eru að mestu starfs­­menn bank­ans, myndu fá 525 millj­­ónir króna í arð vegna síð­­asta árs. A-hlut­hafar fengu hins vegar enga arð­greiðslu. Mark­að­ur­inn segir að greiðsl­urnar sem fóru til starfs­manna séu um 400 millj­ónir króna.

Auglýsing

Rann­sókn hófst í vor

Greint var frá því í apríl að Fjár­­­mála­eft­ir­litið væri að kanna hvort til­­­teknar arð­greiðslur úr fjár­­­mála­­fyr­ir­tækjum væru í raun kaupaukar, en sam­­kvæmt lögum eru kaupaukar til starfs­­manna fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja veru­­lega tak­­mark­að­­ir. Sem dæmi má nefna að Kvika mætti ekki greiða starfs­­mönnum sínum mörg hund­ruð millj­­ónir króna í kaupauka sam­­kvæmt þeim lögum enda tak­­marka þau kaupauka­greiðslur við það að vera fjórð­ungur af árs­­tekjum hvers starfs­­manns. 

For­svars­menn Kviku hafa hingað til neitað því opin­ber­­lega að arð­greiðslur til B-hlut­hafa, sem eru aðal­­­lega starfs­­menn bank­ans, sé leið til að kom­­ast fram hjá reglum sem tak­­marka kaupauka. Nú hefur Fjár­mála­eft­ir­litið kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að arð­greiðsl­urnar til starfs­manna séu skýrt brot á þeim regl­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent