Þrjú stærstu stefnumál Miðflokksins eru Sigmundur, Davíð og Gunnlaugsson

Tveir menn sem heita Andrés ræða ímyndastjórnmál, subbuskap í kosningabaráttu og framboð sem hverfast um einstaklinga sem nærast á stanslausri umfjöllun í nýjasta sjónvarpsþætti Kjarnans. Hann er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21 í kvöld.

kjarninn sjónvarp 4.10.2017
Auglýsing

„Fyrir Sig­mund Davíð skiptir mjög miklu máli að koma þremur helstu mál­efnum flokks hans á fram­færi. Sem eru Sig­mund­ur, Davíð og Gunn­laugs­son.“ Þetta segir Andrés Magn­ús­son, blaða­maður á Við­skipta­blað­inu í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum á Hring­braut í kvöld.

Þar eru ímynd­ar­stjórn­mál, nýjar til­hneig­ingar í stjórn­málum og kosn­inga­bar­áttan fram undan til umræðu. Hinn við­mæl­andi Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans og stjórn­anda þátt­ar­ins, er Andrés Jóns­son almanna­teng­ill.

Andrés Jóns­son segir að almennt séð sé ekki öll athygli góð athygli. Það sé mik­il­vægt að fram­bjóð­endur séu sýni­legir af réttum ástæð­um. Það að halda athygli á sér hjálpi þó til að ná árangri við að setja mál á dag­skrá.

Auglýsing

Aðspurður hvort að aðstæður eins og þær sem nú eru uppi, þar sem nær öll athygli er á einu fram­boði Mið­flokks­ins, sem hefur enn ekki kynnt nein stefnu­mál né fram­boðs­lista, skaði aðra flokka í kosn­inga­bar­átt­unni segir Andrés Magn­ús­son svo vera. Það skipti Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son, leið­toga þess flokks og þann sem flokk­ur­inn var stofn­aður utan um, mestu máli að koma helstu áherslu­málum sínum á fram­færi. Þau áherslu­mál séu hann sjálf­ur. „Enn sem komið er hefur honum tek­ist mjög vel að kalla sitt fólk fram. Hitt fólkið var ekk­ert á leið­inni til hans flokks hvort sem var. Það skiptir hann ekki máli. En fyrir hina flokk­anna á miðj­unni, og aðra sem eru með popúl­ískar hneigðir skulum við segja, þá er þetta mjög erfitt ef hann er að ná svona mik­illi athygli á sig. Ekki nein mál­efni, nema kannski Wintris-­mál­ið, sem ég fæ ekki séð hvernig aðrir flokkar eiga aðkomu að.“

Það sé erfitt fyrir aðra flokka að finna mál til aðgreina sig þegar kast­ljósið bein­ist ann­ars vegar að stórum vinstri flokki, Vinstri græn­um, og hins vegar að stórum hægri flokki, Sjálf­stæð­is­flokkn­um, og síðan „þessum karli þarna á miðj­unn­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent