Sönnun í innherjasvikamálum er flókin en miðað við þau gögn og upplýsingar sem hér birtast virðist sem margt er tengist aðdraganda hruns, vitneskju innherja og viðskiptum í kjölfarið gefa ærið tilefni til rannsóknar. Þetta segir Helga Vala Helgadóttir, oddviti Reykjavík norður fyrir Samfylkinguna og lögmaður, í Facebook-síðu sinni.
Tilefnið er ný gögn sem sýna að Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður og núverandi starfandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni, fyrir um 50 milljónir króna, dagana fyrir bankahrunið, eftir að hafa meðal annars setið fund sem þingmaður um alvarlega stöðu bankans, og miðlað þeim áfram til bankamanna.
„Fyrir liggur að Bjarni Benediktsson hefur nýtt innherjaupplýsingar sjálfum sér og fjölskyldu sinni til heilla, upplýsingar sem almenningur í landinu hafði ekki og gat því ekki forðað fjármunum sínum að sama skapi,“ segir hún.
Helga Vala segir jafnframt að það sé skýrt lögbrot ef rétt er samkvæmt lagaákvæðum um meðferð innherjaupplýsinga og viðskipti innherja. Þetta kalli á að Alþingi skipi án tafar rannsóknarnefnd því þó aðdragandi hruns hafi verið rannsakaður sé augljóst að enn leynast upplýsingar sem rannsakendur höfðu ekki.
Að lokum þakkar hún Stundinni, Reykjavík media og Guardian fyrir vinnuna.