Benedikt Jóhannesson hefur tekið ákvörðun um að stíga til hliðar sem formaður Viðreisnar. Hann tilkynnti þessa ákvörðun sína á fundi með þingflokki og stjórn flokksins í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsson, oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi og fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tekur við formannsstöðunni og leiðir flokkinn inn í kosningar 28. október.
Mikils titrings hefur gætti í baklandi Viðreisnar undanfarna daga, samkvæmt heimildum Kjarnans, og óánægju gætti með framgöngu Benedikts í viðtali við RÚV, þar sem meðal annars var rætt um ástæður þess að það slitnaði upp úr ríkisstjórnarsamstarfinu með Sjálfstæðisflokknum og Bjartri framtíð.
Benedikt baðst afsökunar á ummælum í viðtalinu, sem meðal annars snéru að því að fólk myndi ekki eftir því hver hefði verið ástæða þess að ríkisstjórnin féll.
Í viðtalsþætti í gær notaði ég afar klaufaleg ummæli um tilefni stjórnarslitanna, þegar ég sagði að enginn myndi lengur...
Posted by Benedikt Jóhannesson on Tuesday, October 10, 2017
Á fundinum var samþykkt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og oddviti framboðs Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi tæki við hlutverki hans. Sú ákvörðun var staðfest af ráðgjafarráði flokksins á fundi sem lauk upp úr kl. 18.00 í dag.
Benedikt segir í tilkynningu að Viðreisn hafi verið stofnuð til að breyta hlutum til batnaðar, með almannahagsmuni í forgrunni. „Viðreisn var stofnuð til þess að breyta íslenskum stjórnmálum. Við viljum breyta grundvallarkerfum, til dæmis í landbúnaði og sjávarútvegi, og hverfa frá sveiflukenndum gjaldmiðli og miklu hærri vöxtum en í nágrannalöndum okkar. Við teljum að íslenskir kjósendur vilji hverfa frá stjórnmálum sem snúast um persónur og hugsa um málefni. Við viljum stöðugleika en ekki stöðnun.
Þrátt fyrir að málefnastaða Viðreisnar sé sterk, úrvals frambjóðendur í efstu sætum framboðslistanna og alþingismenn og ráðherrar Viðreisnar hafi verið ötulir frá fyrsta degi er staða flokksins veik í skoðanakönnunum. Sú staða er að mínu viti ekki eðlileg þegar litið er til afar sterkrar málefnastöðu okkar, loforða fyrir síðustu kosningar og efnda þeirra loforða á einungis átta mánuðum í ríkisstjórn. Viðreisn vinnur ötullega fyrir land og þjóð, fyrir almannahagsmuni gegn sérhagsmunum. Ég hef unnið að undirbúningi að stofnun flokksins og störfum hans sleitulaust undanfarin þrjú og hálft ár. Það er óásættanlegt að sjá að fulltrúar frjálslyndis beri skarðan hlut frá borði og því tel ég rétt að skipta um formann í flokknum á þessari stundu. Þá ákvörðun tók ég einn og án þrýstings frá öðrum.
Mér þykir það skipta miklu meira máli að fulltrúar þeirra hugmynda frjálslyndis og framsækni sem Viðreisn hefur boðað sitji á Alþingi en að ég sé í formennsku. Með þvi að stíga til hliðar og hleypa öðrum að stjórnvelinum vil ég leggja mitt af mörkum til þess að Viðreisn nái að snúa vörn í sókn á síðustu metrum þessa kosningaundirbúnings. Ég mun að sjálfsögðu vinna áfram í mínu kjördæmi og berjast þar fram til síðasta dags og ég óska Þorgerði Katrínu alls hins besta í þessu nýja verkefni sem hún hefur skyndilega tekið að sér. Ég er sannfærður um að hún mun leiða Viðreisn og hennar glæstu hugsjónir til góðrar niðurstöðu í komandi Alþingiskosningum,“ segir Benedikt í tilkynningu.
Þorgerður Katrín segir þess ákvörðun „dæmigerða“ fyrir Benedikt. „Þessi ákvörðun Benedikts er dæmigerð fyrir það hvernig hann hefur alla tíð látið sér annt um vöxt Viðreisnar og viðgang. Án hans hefði þessi flokkur ekki orðið til og stofnandinn er trúr hugsjónum sínum með því að stíga til hliðar við þessar aðstæður. Ég vil fyrir hönd alls Viðreisnarfólks þakka Benedikt fyrir elju hans og dugnað í formannsstólnum.
Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og tek við þessum kyndli með mikilli virðingu fyrir því starfi sem unnið hefur verið innan flokksins og ekki síður fyrir því Grettistaki sem við þurfum að lyfta fram að kosningum. Við þurfum að ná augum og eyrum kjósenda með bæði áherslur okkar og árangur. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að frjálslynd sjónarmið og nauðsynlegar kerfisbreytingar eigi sterka rödd á alþingi og í næstu ríkisstjórn. Við þurfum að standa vörð um þau málefni jafnréttis, efnahags og velferðar sem við höfum haft í forgrunni og eiga svo brýnt erindi í íslensku samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín í tilkynningu frá Viðreisn.