Formannsskipti í Viðreisn – Þorgerður Katrín tekur við

Benedikt Jóhannesson er ekki lengur formaður Viðreisnar. Flokkurinn mælist nú með 3,3 prósent fylgi og er töluvert frá því að ná manni inn á þing.

Benedikt Jóhannesson hefur vikið sem formaður Viðreisnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er tekin við.
Benedikt Jóhannesson hefur vikið sem formaður Viðreisnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er tekin við.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er tekin við sem for­maður Við­reisn­ar. Þetta herma öruggar heim­ildir Kjarn­ans. Þing­menn flokks­ins funda nú á skrif­stofu hans í Ármúla og þar hefur verið ákveðið að Bene­dikt Jóhann­es­son, sem hefur verið for­maður Við­reisnar frá stofnun flokks­ins og er starf­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, víki sem for­mað­ur. Ástæðan er tví­þætt sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Ann­ars vegar sú að óánægju gætir með fram­göngu Bene­dikts að und­an­förnu, sér­stak­lega í sjón­varps­þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV á mánu­dags­kvöld. Hins vegar er staða flokks­ins grafal­var­leg sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um, en sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans mælist fylgi flokks­ins ein­ungis 3,3 pró­sent.

Í þætt­inum For­ystu­sæt­inu lét Bene­dikt þau ummæli falla um upp­­reist æru-­­málið sem sprengdi rík­­is­­stjórn­­­ar­­sam­­starfið að málið „sem þótti svo stórt að það var ástæða til stjórn­­­ar­slita, það man varla nokkur hvað þetta er.“ Hann sagð­ist enn fremur ekki telja að málið hafi verið þannig vaxið að það hefði verið til­­efni til stjórn­­­ar­slita og að Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn væri búin að gefa nauð­­syn­­leg svör um upp­­reist æru dæmdra kyn­­ferð­is­brota­­manna.

Sú fram­ganga hans vakti upp mikla reiði innan Við­reisnar og var hald­inn krísufundur í gær­morgun vegna henn­ar. Í kjöl­farið sendi Bene­dikt frá sér yfir­lýs­ingu á Face­book þar sem hann sagð­ist ekki hafa ætlað að gera lítið úr þeim sár­s­auka sem þolendur kyn­­ferð­is­brota og aðstand­enda verða fyrir með ummælum sín­um. Hann bað alla aðila máls­ins inn­i­­lega afsök­un­­ar.

Auglýsing

Þor­gerður Katrín er starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hún er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og odd­viti Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent