47,6% vilja annað hvort Vinstri græn eða Sjálfstæðisflokkinn

Nýjasta kosningaspáin sýnir að Vinstri græn eru vinsælust, Sjálfstæðisflokkur næst vinsælastur og að Samfylkingin er þriðja stærsta stjórnmálaaflið.

Nærri því helmingur kjósenda íhugar að kjósa annað hvort Vinstri græna, flokk Katrínar Jakobsdóttur, eða Sjálfstæðisflokkinn, flokk Bjarna Benediktssonar.
Nærri því helmingur kjósenda íhugar að kjósa annað hvort Vinstri græna, flokk Katrínar Jakobsdóttur, eða Sjálfstæðisflokkinn, flokk Bjarna Benediktssonar.
Auglýsing

Nærri því helm­ingur kjós­enda ætlar að greiða annað hvort Vinstri grænum eða Sjálf­stæð­is­flokknum atkvæði sitt í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber næst­kom­andi. Nýjasta kosn­inga­spáin mælir Vinstri græn enn sem vin­sælasta fram­boðið í kosn­ing­unum með 26,2 pró­sent fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með stuðn­ing 21,4 pró­sent kjós­enda í dag, litlu minna en hann var með í kosn­inga­spánni 7. októ­ber síð­ast­lið­inn. Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi í sam­vinnu við Kjarn­ann í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Hægt er að leas nánar um kosn­inga­spána í kosn­inga­mið­stöð Kjarn­ans.

Þrjár kann­anir eru hafðar til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni og fá þær allar svipað vægi. Það hefur vakið athygli að könnun Frétta­blaðs­ins sem birt var í morgun sýndi allt aðra nið­ur­stöðu en könnun MMR sem birt var síð­deg­is. Það má eflaust að miklu leyti skýra með því að benda á mis­mun­andi aðferða­fræði við gerð kann­ana. Könnun Frétta­blaðs­ins var gerð á einum degi, og 804 svör­uðu könn­un­inni. Könnun MMR var gerð á lengri tíma, dag­ana 6. til 11. októ­ber.

Kosn­inga­spáin vigtar nið­ur­stöður þess­ara kann­ana í takt við aðferða­fræð­ina sem býr að baki könn­un­unum og miðar við sögu­lega nákvæmni könn­un­ar­að­ila sam­an­borið við úrslit kosn­inga hverju sinni. Fylg­is­sveifl­urnar í kosn­inga­spánni eru þess vegna ekki eins dramat­ískar og í nið­ur­stöðum ein­stakra kann­ana, en gefa skýr­ari mynd af þróun fylg­is­sveifl­anna.

Stjórn­ar­flokk­arnir tapa enn

Þeir þrír flokkar sem starfað hafa með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn á und­an­förnum árum tapa mestu fylgi í kosn­inga­spánni í ár. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn starf­aði með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn á árunum 2013-2016. Flokk­ur­inn mælist nú með aðeins 5,9 pró­sent fylgi.

Auglýsing

Við­reisn og Björt fram­tíð hafa svo starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í Stjórn­ar­ráð­inu und­an­farna mán­uði. Björt fram­tíð mælist nú með 3,4 pró­sent fylgi og Við­reisn með 3,3 pró­sent.

Á sama tíma hafa nýju stjórn­mála­öflin Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins ítrekað fengið meiri stuðn­ing í könn­unum en sam­starfs­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mið­flokk­ur­inn hefur enn ekki gefið út stefnu­skrá en mælist samt sem áður með 9,8 pró­sent stuðn­ing. Flokkur fólks­ins mælist nú með 7,4 pró­sent.

Sam­fylk­ingin sækir enn í sig veðrið og er nú með stuðn­ing 11,1 pró­sent kjós­enda miðað við kosn­inga­spána. Píratar halda áfram að tapa fylgi og eru með 9,9 pró­sent fylgi.

Kosn­inga­spáin var raunar gerð tvisvar í dag, fyrst var hún upp­færð í takt við nýj­ustu könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 sem birt var í Frétta­blað­inu í morg­un. MMR birti svo könnun sína síð­degis og þá var kosn­inga­spáin gerð aftur með nýj­ustu gögn­un­um.

Í línu­rit­inu hér að ofan er staðan í kosn­inga­spánni í dag merkt tvisvar, en dag­setn­ing fyrri útgáf­unnar merkt 10. októ­ber til þess að gera fram­setn­ingu gagn­anna skýr­ari.

Nánar má lesa um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar í kosn­inga­mið­stöð Kjarn­ans eða á vef Bald­urs Héð­ins­son­ar kosn­inga­spá.is. Þar má einnig lesa í þing­sæta­spána, þar sem líkur á því hvort fram­bjóð­endur nái kjöri eða ekki eru reikn­að­ar.

Þær kann­anir sem kosn­inga­spáin byggir á 11. októ­ber 2017 eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 36,3%)
  • Skoð­ana­kann­anir Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 2-3. okt og 10. okt (vægi 34,3%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 2. – 6. októ­ber (vægi 29,4%)
Niðurstöður kosningaspár 11. október 2017
Kosningaspáin var gerð síðdegis 11. október 2017. Tvær kannanir birtust í dag, frá Fréttablaðinu og MMR.
Þróun fylgis stjórnmálaflokka í kosningaspánni
Fylgi flokka miðað við kosningaspána frá og með 30. ágúst 2017.
B C D F M P S V Aðrir

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent