Engin efni í skaðlegu magni fundust í námunda við Helguvík

Samkvæmt niðurstöðum mælinga Norsku loftrannsóknarstofnunarinnar á sýnum sem tekin voru á tímabilinu 21. maí til 23. júní í ár fundust engin efni í þeim styrk að þau gætu haft skaðleg áhrif á íbúa nærliggjandi svæða.

United Silicon ágúst 2017
Auglýsing

Engin efni voru í skað­legu mæli í þeim sýnum sem tekin voru í Helgu­vík vegna verk­smiðju United Sil­icon. Þetta kemur fram í niður­stöðum mæl­inga Norsku loft­rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar á rok­gjörnum líf­rænum efna­sam­böndum vegna kís­il­verk­smiðju United Sil­icon sem borist hafa félag­inu og Umhverf­is­stofn­un.

Alls hafi 200 efni verið mæld en meðal þeirra 35 efna, sem hæst mældust, hafi ekk­ert þeirra verið á þeim kvarða sem þyki óeðli­legur í úthverfi eða þétt­býli.

Ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar um stöðvun rekst­urs Sam­ein­aðs Síli­kons hf. er samt sem áður óbreytt og er rekstr­ar­að­ila óheim­ilt að end­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­ur­bótum og ítar­legu mati á þeim. Þetta kemur fram á vef­síðu Unhverf­is­stofn­un­ar. 

Auglýsing

Mæl­ing­arnar voru gerðar á sýnum sem tekin voru tíma­bil­inu 21. maí til 23. júní í ár. Sýnin voru tekin í íbúða­byggð í námunda við verk­smiðj­una, á lóð verk­smiðj­unnar og inn í henni þar sem styrk­leiki efna ætti að vera hvað mest­ur, það er inn í ofn­húsi og síú­hús. Þess ber þó að geta að á umræddu tíma­bili voru kvart­anir til Umhverf­is­stofn­unar vegna lyktar fremur fáar. Þetta segir í frétta­til­kynn­ingu frá United Sil­icon.

Í sam­an­tekt skýrsl­unnar segir meðal ann­ars að efna­mæl­ing­arnar þyki dæmi­gerðar fyrir það sem þekk­ist utandyra yfir sum­ar­tíma í íbúða­byggð. Efna­styrkur í ofn­húsi var fremur lágur miðað við það sem þekk­ist í sams­konar iðn­aði, að því er segir í skýrsl­unni. Í síu­húsi, það er reyk­síu verk­smiðj­unn­ar, voru vís­bend­ingar um líf­rænt anhýd­ríð sem gæti valdið lykt og tíma­bund­inni ert­ingu í önd­un­ar­vegi og aug­um, tekið skal fram að síu­hús er hluti hreinsi­bún­aðar verk­smiðj­unn­ar.

Í skýrsl­unni kemur fram að ekki hafi reynst unnt að mæla form­al­d­ehýði á umræddu tíma­bili. Umhverf­is­stofnun óskaði í sumar eftir grein­ingu á form­al­d­ehýði í nágrenni United Sil­icon og í útblæstri síu­húss fyr­ir­tæk­is­ins ásamt mæl­ingu á öðrum gas­teg­und­um. Umsjón mæl­inga var í höndum Efna­grein­ingar Keldna­holt­i/Ný­sköp­un­ar­mið­stöð. 

„Við teljum þetta mik­il­vægt gagn í vinnu við að koma verk­smiðj­unni í rekstr­ar­hæft horf. Enn er þó mikið verk óunn­ið. Mik­il­væg­ast er að vera viss um að öryggi íbúa á svæð­inu og starfs­manna sé ekki ógnað og er því nið­ur­stöður mæl­inga sem þess­ara for­gangs­at­riði. Við munum halda þeirri vinnu áfram, fyrir liggja til­lögur frá NILU um frek­ari mæl­ingar en það er ekki hægt að ráð­ast í þær nema leyfi fáist á því að ræsa versk­miðj­una á ný,“ segir Karen Kjart­ans­dótt­ir, tals­maður United Sil­icon.

NILU er sjálf­stæð rann­sókn­ar­stofnun með rúm­lega þrjá­tíu ára reynslu af efna­mæl­ingum og hefur byggt upp mikið gagna­safn sem notuð eru til sam­an­burð­ar.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent