Segir starfsemi RÚV vera samkeppnisskekkju

Samkeppnismál eru til umræðu í sjónvarpsþætti Kjarnans í kvöld. Þar er meðal annars rætt um Costco-áhrifin, breytta neytendahegðun, áhrif netverslunar, fjölmiðlamarkaðinn og skort á beikoni og gæða nautakjöti.

Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Páll Gunnar Pálsson er forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
Auglýsing

Sam­keppni er umfjöll­un­ar­efni sjón­varps­þáttar Kjarn­ans í kvöld. Þar er meðal ann­ars fjallað um hvernig tækni­þróun og net­versl­un, breytt neyt­enda­hegðun og inn­koma alþjóð­legra fyr­ir­tækja á borð við Costco inn á mik­il­væga mark­aði hér­lendis hefur breytt sam­keppn­isum­hverf­inu.

Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ræðir meðal ann­ars um fjöl­miðla­mark­að­inn og sam­keppni á hon­um. Hann segir að það sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að út úr þess­ari þróun og breyt­ingum sem eru að eiga sér stað á honum komi tæki­færi til öfl­ugri starf­semi á fjöl­miðla­mark­aði. „Og að það tak­ist mögu­lega að leysa ein­hver vanda­mál sem lúti að fjöl­ræði og fjöl­breytni. Vanda­málin eru næg eins og þið á þessum litlu fjöl­miðlum hafið auð­vitað bent á á und­an­förnum miss­er­um.“

Auglýsing
Páll minnir á að fjöl­miðla­mark­að­ur­inn hér sé mjög sér­stakur vegna þess að á honum starfi RÚV, sem sé bæði í eigu rík­is­ins og kost­aður með öðrum hætti en keppi­nautar hans. Þ.e. með rík­is­fé.  „Það er auð­vitað sam­keppn­is­skekkja, alveg aug­ljós, sem af því hlýst að einn keppi­nautur til dæmis um aug­lýs­ingar hafi síðan aðgang að fjár­munum sem hinir hafa ekki. Þetta er hins vegar skekkja sem er þekkt ann­ars staðar en hér og að ein­hverju leyti við­ur­kennd í Evr­ópu. En við höfum bent á þessa skekkju og hún felur í sér vand­kvæði fyrir minni fjöl­miðla­fyr­ir­æki að kom­ast inn á mark­að­inn sem eru að keppa um aug­lýs­inga­tekj­ur. Þetta vanda­mál er óleyst þótt ýmis­legt hafi verið lag­að.“



Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri félaga atvinnu­rek­enda er einnig gestur þátt­ar­ins. Hann segir meðal ann­ars að inn­lend eft­ir­spurn eftir land­bún­að­ar­vörum hafi auk­ist svo hratt að inn­lendir fram­leið­endur séu fjarri því að geta fram­leitt nægi­lega mikið til að anna henni. Það vanti svína­síður til að búa til beikon handa túristum og það sé við­var­andi skortur á nauta­kjöti, ekki síst gæða­nauta­kjöti. Samt fái kaup­menn ekki að flytja inn gæða nauta­kjöt. „Naut­gripa­bændur sjálfir við­ur­kenna að það er ekki til í íslenskri fram­leiðslu. Við náum ekki upp í efstu flokk­anna í gæða­mat­skefi Evr­ópu­sam­bands­ins. Þrátt fyrir það eru miklar hömlur á inn­flutn­ingi og ekki opn­aðir skort­kvótar fyrir nauta­kjöt. Það er eitt sem maður hefði viljað sjá breyt­ast en hefur ekki breyst.“

Þátt­ur­inn er á dag­skrá klukkan 21 í kvöld.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent