Kosningaspáin reiknar líkindi þess að einstaka frambjóðendur nái kjöri

Baldur Héðinsson útbýr kosningaspána í fjórða sinn fyrir Alþingiskosningarnar.

kosningar 2017 formenn flokka content branding
Auglýsing

Í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga á Íslandi hefur Kjarn­inn birt kosn­inga­spá Bald­urs Héð­ins­son­ar. Þar eru fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­anir á fylgi fram­boða í kosn­ingum vigtaðar og metnar með til­liti til oft fal­inna þátta sem hafa áhrif á nákvæmni skoð­ana­kann­ana.

Kosn­inga­spáin er unnin og birt á vef Kjarn­ans í fjórða sinn fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 28. októ­ber næst­kom­andi.

„Kosn­inga­spáin býður upp á tvennt sem aðrir bjóða ekki upp­á,“ segir Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ingur og höf­undur kosn­inga­spár­lík­ans­ins fyrir Ísland. „Í fyrsta lagi tekur hún saman upp­lýs­ingar úr öllum fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­könn­unum á hverjum tíma­punkti og vegur þær saman til að gefa gott mat á núver­andi stöð­u.“

„Í öðru lagi gefur þing­manna­spáin mun betra mat á því hverjir mögu­leikar fram­bjóð­enda eru á að kom­ast inn á þing en nokkur annar mið­ill býður upp á.“

Auglýsing


Þing­manna­spáin mælir séns­inn

Baldur hann­aði við­bót við kosn­inga­spána fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra þar sem hverjum fram­bjóð­anda fyrir sig voru gefnar líkur á því að ná kjöri, miðað við þær upp­lýs­ingar sem voru til taks. Þing­manna­spáin verður gerð á ný fyrir kosn­ing­arnar í ár.

Baldur segir þing­manna­spána hafa komið vel út í síð­ustu kosn­ing­um. Til þess að meta það hversu vel tókst til var gerður ein­faldur sam­an­burð­ur. „Segjum að 10 fram­bjóð­endur hafi fengið líkur á bil­inu 20 til 40 pró­sent og að með­al­líkur þess­ara 10 fram­bjóð­enda séu 30 pró­sent. Spáin mundi telj­ast hitta beint í mark ef þrír af þessum tíu fram­bjóð­endum ná kjöri.“

Spurður hvort fram­bjóð­endur þurfi að skjálfa á bein­unum ef þing­sæta­spáin reiknar litlar líkur á því að þeir kom­ist að bendir Baldur fram­bjóð­endum á að bera sig saman við aðra fram­bjóð­end­ur. „Ef ég væri fram­bjóð­andi með tíu pró­sent líkur í þing­manna­spánni myndi í ég finna níu aðra þing­menn með svip­aðar líkur og segja við sjálfan mig að eitt okkar muni lík­lega kom­ast á þing.“

Fyr­ir­myndin er banda­rísk

Kosn­inga­spáin íslenska er byggð á erlendu lík­ani þar sem skoð­ana­kann­anir eru vegnar miðað við fyr­ir­fram ákveðnar for­sendur og nið­ur­stöð­urnar svo lagðar sam­an. Banda­ríska vef­síðan fivet­hir­tyeight.com hefur birt slíkar nið­ur­stöður í um ára­bil.

„Ég lagð­ist í mikla vinnu árið 2014 við að greina sögu­leg gögn um skoð­ana­kann­anir og úrslit kosn­inga og hóf svo að birta kosn­inga­spár fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í sam­vinnu við Kjarn­ann sama ár,“ segir Bald­ur.

Kosn­inga­spáin hefur einnig verið unnin fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016 og Alþing­is­kosn­ing­arnar 2016 og birt á vefn­um.

Kosn­inga­spána fyrir kom­andi kosn­ingar má finna á vef Kjarn­ans, kjarn­inn.is/­kosn­ingar, eða á vef Bald­urs, kosn­inga­spá.is.

Þessi umfjöllun birt­ist fyrst í Mann­lífi, 12. októ­ber 2017.

Stuðningur við stjórnmálaflokka 27. október 2017
Stuðningur við framboð sem bjóða fram í Alþingiskosningum 28. október 2017 miðað við nýjustu kosningaspá á landsvísu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent