Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi og héraðsdómslögmaður leiðir lista Miðflokksins, sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stofnaði, í Reykjavíkurkjördæmi Norður við Alþingiskosningarnar 28. október 2017.
Guðfinna hefur setið í borgarráði og umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar og lagt „höfuðáherslu á húsnæðismál í Reykjavík og lausn húsnæðisvandans“ að því er segir í tilkynningu frá Miðflokknum.
Í störfum sínum að húsnæðismálum á undanförnum árum hefur Guðfinna m.a. setið í stjórn Húseigendafélagsins og Búseta, verið formaður kærunefndar húsamála og tekið þátt í gerð lagafrumvarpa, reglugerða, úrskurða og álitsgerða, kennt og haldið fyrirlestra um fasteignamál.