Um þessar mundir eru búa um 20.000 manns á aldrinum 20 til 29 ára í foreldrahúsum og hefur sá fjöldi farið vaxandi. Ísland hefur gengið í gegnum miklar sveiflur á húsnæðismarkaði síðastliðin misseri en tiltölulega stórir árgangar ungs fólks hafa komið inn á fasteignamarkað á undanförnum árum á sama tíma og nýbyggingar hafa ekki verið færri síðan á 6. áratugnum.
Þetta kom fram í erindi Sigrúnar Ástu Magnúsdóttur, verkefnastjóra húsnæðisáætlana hjá Íbúðalánasjóði, á húsnæðisþingi sem haldið var síðastliðinn mánudag á Hilton Reykjavík Nordica.
Fjöldi íbúa á hverja íbúð hér á landi hefur hækkað undanfarin ár á meðan hann hefur almennt farið lækkandi á hinum Norðurlöndunum. Í dag eru um 2,5 íbúar í hverri íbúð á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum eru um 2 íbúar í hverri íbúð.
Hluti húsnæðisvandans felst í aukinni skammtímaleigu íbúða til ferðamanna. Í erindi Sigrúnar kom fram að um 1,2 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu hafa verið í leigu á Airbnb í 180 daga eða fleiri á síðustu 12 mánuðum. Staðan er öðruvísi á mörgum öðrum landsvæðum þar sem minna er um að íbúðir séu í svo mikilli útleigu á Airbnb.
Flest sveitarfélög á landinu vinna nú að gerð húsnæðisáætlana í samstarfi við Íbúðalánasjóð. Markmiðið með húsnæðisáætlunum er að tryggja að fjölgun íbúða í einstökum sveitarfélögum og á landinu öllu sé í takt við mannfjöldaspár og breyttar fjölskyldugerðir. Með þeim hætti er gengið úr skugga um að allir hafi aðgang að öruggu húsnæði við hæfi.
48 sveitarfélög hafa nú hafið vinnu við húsnæðisáætlun og eru 15 þeirra ýmist langt komin eða hafa birt áætlun. Sem dæmi um afrakstur vinnunnar má nefna að sveitarfélögin á Suðurnesjum gera ráð fyrir samtals 1.000 nýjum íbúðum á árunum 2017 til 2021.
Sigrún segir að það sé mjög ánægjulegt að sjá heilt landssvæði takast á við þær miklu áskoranir sem munu fylgja ef spá um mikla mannfjöldaaukningu ganga eftir en öll sveitarfélögin á Suðurnesjunum eru nú á lokametrunum við gerð sinnar húsnæðisáætlunar.
Hún segir jafnframt að annar vandi blasi hins vegar við á landsbyggðinni þar sem á mörgum landssvæðum hefur nánast ekkert verið byggt svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Það sé mikilvægt að Íslendingar greini þann vanda með nákvæmum hætti eftir ólíkum landssvæðum og þar séu húsnæðisáætlanir sveitarfélaga lykilþáttur.