FME: Gerum ekki athugasemdir við lækkun eigin fjár bankanna

Aðstoðarforstjóri FME, Jón Þór Sturluson, segir að það komi til greina að lækka eigið fé bankana í varfærnum skrefum. Þetta kemur fram í viðtali við hann i Morgunblaðinu.

fme.jpg
Auglýsing

„Við gerum ekki athuga­semdir við það ef bank­arnir myndu lækka eig­in­fjár­hlut­fall sitt í var­færnum skref­um,“ ­segir Jón Þór Sturlu­son, aðstoð­ar­for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME), í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag. „Fjár­mála­eft­ir­lit­ið ­myndi hins vegar ekki heim­ila ­bönk­unum að greiða arð í það ­miklum mæli að eig­in­fjár­hlut­fall almenns eigin fjár þáttar 1 færi í 16%,“ ­segir hann og nefnir að 18% væri nærri lagi að teknu til­liti til stjórn­enda­auka ­bank­anna sjálfra (e. plann­ing buf­fer). 

Fram kom í Morg­un­blað­inu í gær að sam­kvæmt grein­ingu Danske ­Bank eru íslensku bank­arnir með­ mun ríf­legra eigið fé en þekk­ist ann­ar­s ­staðar á Norð­ur­lönd­um. 

Sam­kvæmt því sem kom fram í blað­inu, þá gætu end­ur­reistu við­­skipta­­­bank­­­arn­ir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, verið í stakk bún­­­ir til þess að greiða allt að 240 millj­­­arða króna í arð til eig­enda í því skyni að eig­in­fjár­­­hlut­­­fall þeirra verði með svip­uðu sniði og ann­­­ars staðar á Norð­­ur­­lönd­um, sam­­­kvæmt út­­­reikn­ing­um sem fjallað var í Morg­un­blað­inu í gær.

Auglýsing

Sé mið tekið af því sem Jón Þór segir í við­tali við Morg­un­blaðið þá er nær lagi að það sé hægt að greiða um 200 millj­arða úr bönk­unum til eig­enda, án þess að efna­hags­legum styrk bank­anna sé ógn­að.

Í nýlegri grein­ingu frá Danske Bank, um stöðu íslenska banka­­kerf­is­ins, kom fram að það væri á traustum fót­um, og að eig­in­fjár­­­staða þess væri ólík því sem þekk­ist á Norð­­ur­lönd­un­­um. 

Sam­tals er eigin fé Arion banka, Lands­­bank­ans og Íslands­­­banka um 650 millj­­arðar króna, en ríkið á Íslands­­­banka og Lands­­bank­ann og fullu, og 13 pró­­sent hlut í Arion banka.

Eig­in­fjár­hlut­fall fjár­mála­stofn­ana, ­sem kallað hefur verið „al­mennt eig­ið fé þáttar 1“ (e. Common Equity Tier 1), var um 23% að með­al­tali hjá íslensku ­bönk­unum í lok ann­ars árs­fjórð­ungs, en er um 16% að með­al­tali hjá sam­bæri­legum bönkum ann­ar­s ­staðar á Norð­ur­lönd­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent