Tryggingargjaldið skattur sem dregur úr krafti fyrirtækja

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að tryggingargjald sem leggist á launa

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
Auglýsing

Þrátt fyrir að hafa lækkað um 0,94 ­pró­sentu­stig hefur trygg­inga­gjald­ið hækkað um allt að þriðj­ung í krón­um talið á und­an­förnum fjórum árum. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, en sé mið tekið af fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár, þá verða tekjur rík­is­sjóðs af trygg­in­ar­gjaldi 99 millj­arðar á næsta ári.

Verði frum­varpið sam­þykkt ó­breytt mun gjaldið því hafa hækk­að um 30 millj­arða króna frá árinu 2013. 

Á sama tíma hefur atvinnu­leysi dreg­ist jafnt og þétt sam­an, en það mælist nú um þrjú pró­sent, og er vöntun á vinnu­afli í mörgum geirum atvinnu­lífs­ins.

Auglýsing

 „Trygg­inga­gjaldið var hækk­að til þess að standa straum af aukn­u at­vinnu­leysi í kjöl­far hruns­ins. Þetta var hugsað sem tíma­bundin aðgerð. Það mynd­að­ist hins vegar mik­il tregða hjá rík­is­stjórn­inni að lækk­a gjaldið aftur þegar atvinnu­leysi minnk­aði. Gjaldið hefur ekki fylg­t ­þróun atvinnu­leysis til lækk­un­ar,“ ­segir Ingólfur Bend­er, aðal­hag­fræð­ingur Sam­taka iðn­að­ar­ins, í við­tali við Frétta­blað­ið. 

Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, ­segir að trygg­inga­gjaldið ger­i það að verkum að fyr­ir­tæki með fjórt­án ­starfs­menn greiði í reynd kostn­að ­sem sam­svarar fimmt­ánda starfs­mann­in­um. 

Þetta bitni veru­lega á litlum og með­al­stórum fyr­ir­tækj­um, en þau eru meira en 70 pró­sent af hag­kerf­inu. „Trygg­inga­gjaldið er vondur skatt­ur ­sem leggst á öll laun og dregur úr ný­sköpun í atvinnu­líf­inu. Það bitn­ar ­sér­stak­lega á litlum fyr­ir­tækjum þar ­sem launa­gjöld eru yfir­gnæf­and­i hluti rekstr­ar­gjalda, en lítil fyr­ir­tæki eru meg­in­upp­spretta nýrra starfa í efna­hags­líf­in­u,“ segir Hall­dór Benja­mín í við­tali við Frétta­blað­ið. 

Trygg­inga­gjaldið stendur nú í 6,75 ­pró­sentum og er gert ráð fyrir að það skili um 90 millj­örðum króna til­ ­rík­is­sjóðs í ár. Til sam­an­burðar var hlut­fallið 7,69 pró­sent árið 2013 en þá voru tekjur rík­is­sjóðs af gjald­in­u tæpir 70 millj­arð­ar. Hæst var hlut­fall­ið 8,65 pró­sent árið 2011, eftir efna­hags­hrun en þá hækk­aði atvinnu­leysi snögg­lega og fór hæst í tæp­lega 10 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent