Isavia kyrrsetti nú fyrir stundu flugvél Air Berlin á Keflavíkurflugvelli vegna notendagjalda sem eru í vanskilum sem eru tilkomin vegna greiðslustöðvunar Air Berlin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.
Isavia hefur heimildir í loftferðalögum til þess að kyrrsetja loftför „svo tryggja megi greiðslu vangoldinna gjalda, og hefur því úrræði verið beitt einu sinni áður á Keflavíkurflugvelli,“ að því er segir í tilkynningu frá Isavia.
Um er að ræða vanskil á gjöldum sem stofnaðist til áður en Air Berlin fór í greiðslustöðvun.
Ljóst er að framkvæmdin mun hafa áhrif á ferðir þeirra farþega sem áttu bókað flug með Air Berlin og harmar Isavia að til þessa hafi þurft að koma. „Þessi aðgerð er hins vegar eina úrræðið sem félagið hefur til þess að tryggja greiðslu skuldar Air Berlin. Starfsfólk Isavia er til taks á Keflavíkurflugvelli í nótt ef kemur til þess að aðstoða þurfi þá farþega sem verða fyrir áhrifum af þessari aðgerð,“ segir í tilkynningunni.