Píratar með bestu loftslagsstefnuna

Píratar skora hæst í úttekt loftslagsbloggsins Loftslag.is. Sjálfstæðisflokki vantar lítið til þess að ná prófinu. Miðflokkurinn og Flokkur fólksins skiluðu ekki svörum.

Stefnumál Pírata eru loftslagsvænust að mati Loftslag.is.
Stefnumál Pírata eru loftslagsvænust að mati Loftslag.is.
Auglýsing

Áherslur Pírata fá hæstu ein­kunn í úttekt lofts­lags­bloggs­ins Lofts­lag.is á stefnu allra stjórn­mála­flokka sem bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn.

Allir flokkar fengu sex spurn­ingar sendar þar sem óskað var eftir útlistun á stefnu og afstöðu flokk­anna á afmörk­uðum sviðum tengdum lofts­lags­mál­um. Svörin sem metin voru má lesa á lofts­lags­blogg­inu. Allir flokkar svör­uðu spurn­ing­unum nema Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins. Þeir flokkar fá þess vegna 0 í úttekt­inni.

Nið­ur­stöður úttektar á stefnu fram­boða í lofts­lags­málum

Spurn­ing­arnar sem lagðar voru fyrir fram­boðin voru sex tals­ins. Við úrvinnslu vógu svörin við spurn­ing­unum mis mik­ið. Spurn­ing­arnar og vægi þeirra voru eft­ir­far­andi:

  • Er flokk­ur­inn með eða á móti olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu? (tvö­falt vægi)
  • Eru tölu- og/eða tíma­sett mark­mið varð­andi sam­drátt í losun CO2? (tvö­falt vægi)
  • Er gert ráð fyrir kolefn­is­gjaldi eða hag­rænum hvötum á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda? (tvö­falt vægi)
  • Til­lögur um breyt­ingu inn­viða til að taka á vand­an­um. (ein­falt vægi)
  • Til­lögur varð­andi end­ur­heimt vot­lendis og skóg­rækt. (tvö­falt vægi)
  • Annað almennt um lofts­lags­mál. (ein­falt vægi)

„Átta flokkar stand­ast prófið eins og staðan er í dag og eru Píratar með metn­að­ar­fyllstu stefn­una miðað við þetta rýn­i,“ segir á lofts­lags­blogg­inu. Til þess að stand­ast matið þurfti fram­boð að fá að minnsta kosti 5 í ein­kunn. „Lítið vantar upp á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stand­ist matið og virð­ist bara lít­il­lega vanta upp á metn­að­inn við að setja skýr­ari mark­mið og aðeins ítar­legri stefn­u.“

Auglýsing

100 stig í pott­inum

„Til að gefa flokk­unum ein­kunn þá not­uðum við kerfi þar sem við mátum þessa 6 mis­mun­andi þætti og gáfum þeim ein­kunn á bil­inu 0-10, en mis­jafnt vægi er á milli þátta. Tveir þættir fá ein­falt vægi (mest 10 stig hver þátt­ur) og fjórir þættir fá tvö­falt vægi (mest 20 stig hver þátt­ur) – 100 stig í allt,“ er skrifað á lofts­lags­bloggið.

Aðstand­endur lofts­lags­bloggs­ins lögðu svo mat á hvern þátt og það sem kom fram hjá hverjum flokki. Ein­kunnir voru svo gefnar út frá því.

„Það var mjög ánægju­legt að flestir flokkar svör­uðu og lögðu greini­lega hugsun og vinnu í svör­in. Auð­vitað verður matið að ein­hverju leyti hug­lægt, en við teljum að þessi nálgun gefi nokkuð gott við­mið varð­andi lofts­lags­stefnur flokk­anna og hvernig þeir standa inn­byrð­is.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent