Ég vil ekki að vera dæmdur af sögunni fyrir að hafa ekki gert neitt. Þetta sagði Jeff Flake, öldungadeildarþingmaður Repúblikana frá Arizona, meðal annars í ræðu sinni, þegar hann tilkynnti um að hann hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri.
Flake gagnrýndi Trump Bandaríkjaforseta harðlega, og sagði orðræðu hans og hvernig hann færi gegn gildum og lýðræðislegum leikreglum, meðal annars með því að gengisfella bandaríska lýðræðishefð með því að ala á sundurlyndi.
Hann sagði enn fremur að það væri óásættanlegt fyrir Bandaríkjaþing hvernig forsetinn hagaði sér, meðal annars á Twitter.
Trump hefur gagnrýnt Flake við ýmis tilefni, og kallað hann skemmt epli í hópi Repúblikana.
Auglýsing