12 einstaklingar hafa látist í fangelsum síðan árið 1993

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, þingmanns Pírata, kemur fram að 12 einstaklingar hafa látist í vörslu lögreglu síðan árið 1993. Embætti héraðssaksóknara fer með rannsókn slíkra mála.

fangelsi2.jpg
Auglýsing

Tólf ein­stak­lingar hafa lát­ist í fang­elsum síðan árið 1993. Þetta kemur fram í svari Sig­ríðar Á. And­er­sen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þór­hildar Sunnu Ævars­dóttur þing­manns Pírata sem birt­ist á vef Alþingis í gær. 

Þór­hildur Sunna spurði hversu margir ein­stak­lingar hafi látið lífið á meðan þeir voru í vörslu lög­reglu frá árinu 1965 og innan veggja íslenskra fang­elsa og var óskað eftir sund­ur­liðað eftir árum. Hún spurði jafn­framt í hversu mörgum til­fellum hafi rann­sókn farið fram á máls­at­vikum og aðdrag­anda and­láts við­kom­andi aðila og hverjir fari með rann­sókn slíkra mála. 

Einnig var spurt hvort lög­reglan, sak­sókn­ari eða ein­hver annar aðili ann­ist slíkar rann­sóknir og hvernig slíkar rann­sóknir séu fram­kvæmd­ar. 

Auglýsing

Ráðu­neytið óskaði eftir upp­lýs­ingum frá við­eig­andi emb­ættum vegna fyr­ir­spurn­ar­innar og er svarið unnið í sam­ræmi við þær upp­lýs­ingar sem bár­ust. „Vegna þess tíma sem svörum við skrif­legum fyr­ir­spurnum er mark­aður reynd­ist ekki unnt að bíða frek­ari upp­lýs­inga og tekur svar ráð­herra mið af því.“

Í svar­inu segir að fang­els­is­mála­stofnun rík­is­ins hafi verið stofnuð árið 1989 en fyrir þann tíma ann­að­ist dóms­mála­ráðu­neytið dag­lega yfir­stjórn á rekstri fang­elsa. Gögn er varði fjölda and­láta í fang­elsum frá árunum 1965 til 1988 eru vistuð í Þjóð­skjala­safni Íslands en ekki vannst tími til að afla þeirra gagna við vinnslu svars­ins. 

Fjöldi and­láta í fang­elsum frá stofnun Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins 1. jan­úar 1989 hefur verið sem hér seg­ir: 

        

1993:    1 ein­stak­lingur 
        

1998:    3 ein­stak­lingar 
        

2004:    1 ein­stak­lingur 
        

2005:    1 ein­stak­lingur 
        

2007:    2 ein­stak­lingar 
        

2012:    1 ein­stak­lingur 
        

2013:    2 ein­stak­lingar 
        

2017:     1 ein­stak­lingur lést á sjúkra­húsi í kjöl­far sjálfs­vígstil­raunar í fang­elsi tveimur dögum áður. 

    

And­lát í vörslu lög­reglu og í fang­elsum voru rann­sökuð hjá lög­reglu til 1. júlí 1997 en af rík­is­sak­sókn­ara frá þeim tíma til 1. jan­úar 2016, segir í svari dóms­mála­ráð­herra. Þá hafi emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara tekið við rann­sókn slíkra mála. 

Með lögum 2016 hafi verið sett á fót eft­ir­lits­nefnd með störfum lög­reglu og sé hlut­verk hennar meðal ann­ars að taka til athug­unar mál þegar maður lætur lífið í tengslum við störf lög­reglu óháð því hvort grunur er um refsi­vert brot. 

Eftir sem áður fari hér­aðs­sak­sókn­ari með rann­sókn slíkra mála. Um fram­kvæmd þeirra gildi almennar reglur um rann­sóknir slíkra mála. Í svar­inu kemur enn fremur fram að ekki hafi verið unnt að svara nánar um fram­kvæmdir ein­stakra rann­sókna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent