Inga Sæland í aftursætinu hjá formanni Miðflokksins

Þeir tveir flokkar sem komu nýir inn á þing í kosningunum um helgina eru að mynda einhverskonar bandalag um málefni. Formenn þeirra hittust á leynifundi í dag og komu saman á Bessastaði.

Inga Sæland Helgi Hrafn Gunnarsson
Auglýsing

Þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, kom á Bessa­staði til fundar við for­seta Íslands fyrr í dag sat Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins í aft­ur­sæti bif­reiðar hans. Eftir fund­inn með for­set­an­um, þar sem vænt­an­leg stjórn­ar­myndun var rædd, sagði Sig­mundur Davíð að þau hafi verið á leyni­fundi sem ekki hafi gef­ist tími til að klára áður en að fund­ur­inn með for­set­anum hófs.

Auglýsing
Sigmundur Davíð sagði að flokkar hans og Ingu væru sam­mála um að það væri mik­il­vægt að koma þeim málum sem flokk­arnir tveir eru sam­mála um á fram­færi. Nefndi hann sér­stak­lega mál­efni eldri borg­ara, öryrkja „og fleiri atrið­i“. „Þetta er banda­lag byggt á mál­efn­um.“

Hér sést Inga Sæland í aftursæti bifreiðar Sigmundar Davíðs við komuna á Bessastaði í dag. MYND: RÚV/SkjáskotInga Sæland sagði í sam­tali við RÚV að flokk­arnir ættu margt sam­eig­in­legt. „Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins geta vel verið sam­stíga, hvort sem það er í stjórn­ar­and­stöðu eða í stjórn.“

Flokk­arnir tveir fengu sam­tals ell­efu þing­menn í kosn­ing­unum á laug­ar­dag og um 18 pró­sent atkvæða. Nið­ur­staða þeirra er nán­ast sú sama og Við­reisn og Björt fram­tíð fengu í kosn­ing­unum í fyrra og fjöldi þing­manna nákvæm­lega sá sami. Þá ákváðu þeir tveir flokkar að bind­ast böndum um stjórn­ar­myndun sem skil­aði þeim á end­anum í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um, sem sat í um átta mán­uði.

Banda­lag Mið­flokks og Flokks fólks­ins getur ekki myndað rík­is­stjórn með neinum einum flokki, í ljósi þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði fimm þing­mönnum í kosn­ing­unum um helg­ina. Því myndi þurfa tvo flokka til að vinna með þeim til að skila þeim í rík­is­stjórn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent