Óttarr Proppé hættur sem formaður Bjartrar framtíðar

Formaður Bjartar framtíðar, sem beið afhroð í nýliðnum kosningum, er hættur. Hann axlar ábyrgð á niðurstöðu kosninganna með þessu.

Óttarr Proppé
Auglýsing

Ótt­arr Proppé er hættur sem for­maður Bjartrar fram­tíð­ar. Hann til­kynnti flokks­mönnum þetta í bréfi sem hann sendi þeim fyrr í dag. Þar segir hann að úrslitin í nýliðnum kosn­ingum hafi verið ömur­leg fyrir Bjarta fram­tíð og að honum finn­ist eðli­legt að axla ábyrgð á þeim með því að segja af sér for­mennsku. Björt fram­tíð fékk ein­ungis 1,2 pró­sent atkvæða um helg­ina og féll út af þing­i. 

Óttar tók við for­mennsku í Bjartri fram­tíð fyrir tveimur árum síðan þegar Guð­mundur Stein­gríms­son hætti sem for­mað­ur. Hann leiddi Bjarta fram­tíð í gegnum kosn­ing­arnar í fyrr aþar sem flokk­ur­inn náði fjórum mönnum á þing. Sú nið­ur­staða skil­aði flokknum á end­anum í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Við­reisn.

Sú rík­is­stjórn sat ein­ungis í um átta mán­uði. Björt fram­tíð sprengdi stjórn­ar­sam­starfið um miðjan sept­em­ber í kjöl­far upp­reist-æru máls­ins. Sú ákvörðun leiddi til kosn­inga sem þurrk­aði Bjarta fram­tíð út af þingi. Ótt­arr segir í bréf­inu að ákvörðun að sú ákvörðun hafi verið rétt. „Það var brotið blað í íslenskum stjórn­málum þegar við ákváðum að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi vegna leynd­ar­hyggju sam­starfs­fólks og trún­að­ar­brests tengdum kyn­bundnu ofbeldi. Það for­dæmi mun hafa áhrif til lang­frama.“

Auglýsing

Bréf Ótt­arrs í heild sinn­i: 

Kæru félag­ar.

Úrslit alþing­is­kosn­inga á laug­ar­dag voru sér­stak­lega ömur­leg fyrir flokk­inn okkar og þá umhverf­is­vænu frjáls­lyndispóli­tík sem við stöndum fyr­ir. Mér finnst eðli­legt að axla ábyrgð á þess­ari stöðu og segja af mér emb­ætti for­manns Bjartrar fram­tíð­ar. Verk­efnin framundan eru stór og mik­il­væg. Það fer betur á því að aðrir leiði þá end­ur­skoðun og upp­bygg­ingu sem framundan er.

Síð­ustu tvö ár hafa verið við­burða­rík og sögu­leg. Björt fram­tíð hefur fengið tæki­færi til þess að hafa tölu­verð áhrif í gegnum störf á Alþingi og í rík­is­stjórn. Það var brotið blað í íslenskum stjórn­málum þegar við ákváðum að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starfi vegna leynd­ar­hyggju sam­starfs­fólks og trún­að­ar­brests tengdum kyn­bundnu ofbeldi. Það for­dæmi mun hafa áhrif til lang­frama.

Pói­tískar áherslur Bjartrar fram­tíðar og gildi hafa haft mikil áhrif á stuttum tíma. Við höfum áorkað ýmsu í því yfir­lýsta mark­miði okkar að breyta stjórn­mál­un­um. Það hefur verið mik­ill heiður að njóta trausts og fá tæki­færi til að taka þátt í því.

Það er aug­ljóst að þátt­taka í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar hafði mikil nei­kvæð áhrif á traust til Bjartar fram­tíð­ar. Það var nær ómögu­legt að vekja athygli á mál­efnum og áherslum flokks­ins í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Það er mið­ur.

Það er auð­velt að vera vitur eftir á. Aug­ljóst er að rót­tæk nafla­skoðun er framund­an. Ég hóf þátt­töku í stjórn­málum til að gera gagn. Það er hægt að gera á ýmsa vegu. Í þessum kosn­ingum gerði for­mennska mín flokknum ekki gagn. Við slíkar aðstæður gerir það hug­sjón­unum ógagn að remb­ast eins og rjúpa við staur. Þá er betra að rétta keflið áfram og hjálpa til á annan hátt.

Úrslit kosn­inga eru áhyggju­efni og ekki bara fyrir okkar flokk. Það eru grund­vall­ar­breyt­ingar í loft­inu og ekki allar jákvæð­ar. Gildi og áherslur Bjartrar fram­tíðar skipta máli fyrir sam­fé­lag­ið.

Ég þakka ykkur öllum stuðn­ing­inn og sam­ferð­ina. Þetta hefur verið mikið tripp og lyg­inni lík­ast á köfl­um. Hjartað ólm­ast af þakk­læti og líka af spenn­ingi fyrir fram­tíð­inni. Það er allt hægt ;)

ást og virð­ing,

Ótt­arr

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent