Tollar munu falla niður á súkkulaði, pizzum, pasta, bökunarvörum og fleiri vörum þann 1. maí næstkomandi frá aðildarríkjum ESB. Þá munu samningar Íslands og ESB um viðskipti með landbúnaðarafurðir taka gildi og verður málsmeðferð ESB þá endanlega lokið.
Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins.
Auk þessa verða tollar felldir niður eða lækkaðir á óunnum landbúnaðarvörum eins og til dæmis villibráð, frönskum kartöflum og útiræktuðu grænmeti.
Samningar Íslands og Evrópusambandsins um viðbótarfríðindi í viðskiptum með landbúnaðarvörur annars vegar og um viðurkenningu og vernd landfræðilegra merkinga á landbúnaðarafurðum og matvælum hins vegar voru undirritaðir árið 2015.
„Þetta er fagnaðarefni fyrir íslenska neytendur og útflytjendur. Með samningunum myndast aukin sóknarfæri fyrir útflytjendur auk þess sem tollalækkanirnar munu auka vöruúrval og skila sér í vasa neytenda í gegnum lækkað matvöruverð,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Tollar falla niður á unnum landbúnaðarvörum nema jógúrti
Á vef utanríkisráðuneytisins kemur fram að samningarnir feli í sér að Ísland fellir niður tolla á yfir 340 nýjum tollskrárnúmerum og lækkar tolla á yfir 20 öðrum. Almennt geri ESB slíkt hið sama. Niðurstaðan feli í sér að allir tollar á unnum landbúnaðarvörum eru felldir niður nema á jógúrti.
Jafnframt sé samkomulag um að báðir aðilar auki verulega tollfrjálsa innflutningskvóta, m.a. fyrir ýmsar kjöttegundir og osta og kemur aukningin til framkvæmda á tilteknum aðlögunartíma. Á móti fái Ísland verulega hækkun tollfrjálsra innflutningskvóta fyrir skyr, smjör og lambakjöt og nýja kvóta fyrir alifugla- og svínakjöt og ost.
Samhliða öðlist gildi samningur milli Íslands og ESB um viðurkenningu og vernd landfræðilegra merkinga á landbúnaðarafurðum og matvælum. Í meginatriðum feli samningurinn í sér að íslensk stjórnvöld og ESB skuldbinda sig til að vernda á yfirráðasvæði sínu afurðarheiti sem eru vernduð á yfirráðasvæði hins aðilans.