Eignir verðbréfa- og fjárfestingasjóða yfir 600 milljörðum

Á undanförnum árum hafa verðbréfa og fjárfestingasjóðir verið umsvifamiklir á íslensku eignamarkaði. Eignir sjóðanna drógust þó nokkuð samana milli mánaða, samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands.

peningar
Auglýsing

Eignir verð­bréfa-, fjár­fest­ing­ar- og fag­fjár­festa­sjóða námu 656,6 millj­örðum króna í lok sept­em­ber og lækk­uðu um 12,9 millj­arða milli mán­aða. Þetta sýna hag­tölur Seðla­banka Íslands.

Eignir verð­bréfa­sjóða námu 151,1 millj­arði króna og lækk­uðu þær um 802 millj­ónir milli mán­aða, eignir fjár­fest­ing­ar­sjóða námu 333,7 millj­örðum og lækk­uðu um 10,2 millj­arða. 

Eignir fag­fjár­festa­sjóða námu 171,8 millj­arði og lækk­uðu um tæp­lega tvo millj­arða. 

Auglýsing

Lækk­un­ina má aðal­lega rekja til pen­inga­mark­aðs­sjóða sem lækk­uðu um 6 millj­arða króna, skulda­bréfa­sjóða sem lækk­uðu um 3,6 millj­arða og vog­un­ar­sjóða sem lækk­uðu um 1,4 millj­arða.

Í lok sept­em­ber var heild­ar­fjöldi sjóða 180, það eru 44 verð­bréfa­sjóð­ir, 59 fjár­fest­ing­ar­sjóðir og 77 fag­fjár­festa­sjóð­ir.

Ein ástæða þess að fjár­munir hafa verið að minnka í sjóðum inn­an­lands er sú að líf­eyr­is­sjóðir hafa verið að taka eigna­stýr­ingu úr sjóð­unum og inn á borð til sín, ef svo má segja. Þá hefur fjár­fest­ing í erlendum eignum einnig verið að aukast, en hreyf­ing­arnar eru þó óveru­legar enn sem komið er, þegar á heild­ina er lit­ið.

Sam­kvæmt síð­ustu birtu tölum um eignir líf­eyr­is­sjóða, frá því í lok ágúst, þá námu þær 3.738 millj­örðum króna. Inn­lendar eignir námu ríf­lega 2.800 millj­örð­um, en erlendar eignir 855 millj­örðum og juk­ust þær um 32 millj­arða milli mán­að­anna, júlí og ágúst.

Eign­irnar nema um þessar mundir ríf­lega 11 millj­ónum á hvern Íslend­ing.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent