Ragnar Þór Pétursson hefur verið kjörinn formaður Kennarasambands Íslands. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá sambandinu sem send var til fjölmiðla í dag.
Ragnar Þór tekur við formennsku af Þórði Árna Hjaltested á VII þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári. Þórður lætur þá af embætti en hann hefur gegnt formennsku í KÍ frá árinu 2011. Eiríkur Jónsson var fyrsti formaður KÍ en hann sat frá árinu 2000 til 2011.
Ragnar Þór lauk prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 2001 og kennsluréttindanámi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Háskólanum á Akureyri. Hann stundaði framhaldsnám við sama skóla.
Þrjú voru í framboði til formanns KÍ og féllu atkvæði þannig:
- Guðríður Arnardóttir hlaut 1.944 atkvæði eða 34,2%
- Ólafur Loftsson hlaut 392 atkvæði eða 6,9%
- Ragnar Þór Pétursson hlaut 3.205 atkvæði eða 56,3%
- Auðir seðlar 150 eða 2,6%
Á kjörskrá voru 10.675 og greiddu 5.691 atkvæði, eða 53,3 prósent. Atkvæðagreiðslan var rafræn; hún hófst á hádegi 1. nóvember og lauk klukkan 14.00 í dag.