Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir á Landspítala, hefur verið sendur í leyfi frá störfum. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að rannsóknarnefnd birti í gær niðurstöður sínar á úttekt á störfum íslenskra heilbrigðisstarfsmanna í tengslum við plastbarkamálið.
Þetta kemur fram á Vísi.is.
Landspítalinn staðfestir þetta í samtali við Kjarnann og bætir við að ákveðið hafi verið að Tómas Guðbjartsson yrði í leyfi frá störfum um sinn í ljósi heildarhagsmuna.
Í tilkynningu frá spítalanum segir að hann taki niðurstöður og ábendingar nefndarinnar mjög alvarlega og muni bregðast við þeim. „Þegar hefur verið ákveðið að vísa málinu til siðfræðinefndar spítalans, taka upp samskipti við vísindasiðanefnd varðandi ábendingar skýrslunnar, m.a. um mun á gagna- og sjúklingarannsóknum sem og að taka afstöðu til tillögu skýrslunnar um bætur til ekkju sjúklingsins. Að öðru leyti mun spítalinn taka sér tíma til að rýna skýrsluna gaumgæfilega og bregðast við frekari ábendingum og málum sem upp kunna að koma í þeirri rýni.“
Í niðurstöðum íslensku rannsóknarnefndarinnar sem Landspítali og Háskóli Íslands settu á stofn og kynntar voru í gær kom fram að lífi þriggja einstaklinga hafi verið kerfisbundið stofnað í hættu vegna plastbarkaígræðslu á Karolinska-sjúkrahúsinu og að allir hafi þeir átt undir högg að sækja í samfélaginu. Þetta hafi verið gert á grundvelli áforma stofnunarinnar um uppbyggingu miðstöðvar fyrir háþróaðar aðgerðir á öndunarvegi og er að mati nefndarinnar ekki hægt að útiloka að með þessu hafi 2. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verið brotinn.
Fram kom einnig að ekki verði annað séð en að Tómasi Guðbjartssyni, lækni Andemariam Beyene, sem fyrstur gekkst undir plastbarkaígræðslu í júní 2011, hafi gengið gott til með plastbarkaígræðslunni en að hann hafi látið blekkjast af Maccharini og breytt tilvísun en það varði lög um lækna, 11. gr., sem þá voru í gildi um vönduð vinnubrögð og jafnframt að ákvarðanataka í aðdraganda aðgerðarinnar hafi verið ómarkviss.
Tómas vildi ekki tjá sig að svo stöddu þegar blaðamaður Kjarnans leitaði eftir viðtali.