Björn Valur Gíslason, fyrrverandi þingmaður og varaformaður VG, segir að forsenda fyrir farsælu samstarfi Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að ríkisstjórn þeirra verði undir forystu Katrínar Jakobsdóttur. Það hljóti formenn hinna flokkanna að skilja.
Þetta kemur fram í færslu sem hann skrifaði á heimasíðu sína í dag.
Í færslunni veltir hann því fyrir sér hvort ríkisstjórn þessara þriggja flokka yrði góð ríkisstjórn.
„Ríkisstjórn þessara þriggja flokka hefði sex þingmenn umfram stjórnarandstöðuna og því með traustan meirihluta á þingi. Þinglið hennar yrði ágæt blanda af pólitískum reynsluboltum og nýjum þingmönnum sem gætu auðveldlega staðið af sér atlögur lýðskrumara í stjórnarandstöðu. Ríkisstjórn þessara þriggja flokka myndi ekki ráðast í miklar eða umdeildar kerfisbreytingar hvort sem um væri að ræða í stjórnarskrármálinu, í sjávarútvegi eða landbúnaðarmálum svo dæmi séu tekin. Hún myndi þess í stað einbeita sér að minna umdeildum málum og að treysta frekar heilbrigðis- og velferðarkerfið. Ríkisstjórn Vinstri grænna, sjálfstæðisflokks og framsóknar hefði tækifæri til að gera góða hluta samhliða því að skapa pólitískan stöðugleika í landinu,“ segir hann í færslunni.
Björn Valur hætti sem varaformaður VG í október síðastliðnum.