Enginn einn formaður stjórnmálaflokks mun fá umboð hjá forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, til að mynda nýja ríkisstjórn.
Í tilkynningu frá forsetanum segir að síðustu daga hafi leiðtogar Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna rætt sín á milli um möguleika á myndun ríkisstjórnar þessara flokka. „Eftir samráð við þingmenn og aðra í röðum flokkanna hafa formenn þeirra tjáð mér að þeir séu reiðubúnir til formlegra viðræðna og samninga um ríkisstjórnarsamstarf, gerð stjórnarsáttmála og skipan ráðherraembætta. Þær viðræður munu hefjast nú þegar og er þess að vænta að undir lok vikunnar liggi fyrir hvort þær skila tilætluðum árangri.“
Þingflokkar flokkanna þriggja hafa þegar samþykkt viðræðurnar, sem búist er við að hefjist strax á morgun. Ágreiningur er um málið innan Vinstri grænna, þar sem tveir þingmenn kusu gegn því að fara í viðræðurnar.