Kókaínhagkerfið komið fram úr stöðunni árið 2007

Framleiðsla á kókaíni í Kólumbíu hefur vaxið hratt að undanförnu. Mikil eftirspurn er eftir þessu fíkniefni ríka fólksins, og ýtir hún undir vaxandi framleiðslu og útflutning.

Kókaín
Auglýsing

Bar­átta yfir­valda í Kól­umbíu, Banda­ríkj­unum og öðrum sam­starfs­ríkj­um, í hinu svo­nefnda stríði gegn fíkni­efn­um, hefur væg­ast sagt gengið illa. Þrátt fyrir að vitað sé nán­ast alveg upp á fer­metra, hvar kóka­lauf eru rækt­uð, þá hafa yfir­völd í Kól­umbíu ekki náð að sporna gegn því að fram­leiðslan fari fram og úr lauf­unum unnið kókaín sem síðan er flutt til Banda­ríkj­anna, að stærstu leyti, og síðan einnig til Afr­íku og þaðan inn á mark­aði í Evr­ópu og Asíu.

Fram­leiðslu­svæðin þekkt

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í árs­skýrslu INCS (International Narco Control Stra­tegy) þá hefur land­svæði sem fer undir kóka­ín­fram­leiðslu í Kól­umbíu - sem er eins konar hjarta­vöðvi í hinu risa­vaxna kóka­ín­hag­kerfi heims­ins - stækkað umtals­vert að und­an­förnu og fram­leiðsla auk­ist mik­ið.

Svæði undir kóka­ín­fram­leiðslu stækk­aði um 39 pró­sent árið 2014 og 42 pró­sent árið 2015. Það er mesta aukn­ing sem orðið hefur í sögu mæl­inga á þessum hlutum í land­inu. Sér­stak­lega hefur aukn­ingin orðið mikil á þekktum kóka­laufs­rækt­un­ar­svæðum í Suð­vest­ur­hluta lands­ins.

Auglýsing

Mikil aukn­ing

Í umfjöllun Business Insider kemur fram, að yfir­völd í Kól­umbíu telji að aukn­ingin í útflutn­ingi kóka­íns sé gríð­ar­lega mikil miðað við fyrri ár. Talið er að hún hafi verið 495 tonn árið 2015 en hafi auk­ist veru­lega í fyrra. Svo virð­ist sem eft­ir­spurn eftir kóka­íni í heim­inum hafi farið hratt vax­andi, en það er helst árið 2007 sem er sam­an­burð­ar­hæft við það sem fram kemur í skýrslu INCS.

Í gegnum sög­una hefur eft­ir­spurn eftir kóka­íni oft hald­ist í beinu sam­hengi við efna­hags­lega vel­sæld á helstu mörk­uðum heims­ins. Því meiri vel­sæld og hag­vöxt­ur, því meiri eft­ir­spurn eftir kóka­íni. Sé mið tekið af þessum upp­lýs­ingum frá INCS þá er tölu­verð spenna í heims­bú­skapnum um þessar mund­ir, og greini­legt að efna­hags­legur upp­gangur er það sem helst ein­kennir stærstu mark­aði. Hugs­an­lega má einnig lesa út úr þessu að nýjir mark­aðir séu að koma inn í sölu­netið í svarta hag­kerf­inu, meðal ann­ars í Asíu.

Eng­inn árangur

Þrátt fyrir hert landmæra­eft­ir­lit, sam­starf yfir­valda í Banda­ríkj­unum með ríkjum Suð­ur­-Am­er­íku, og mark­viss­ari kort­lagn­ingu á fram­leiðslu og dreifi­leiðum fíkni­efna, þá hefur fíknefna­vandi í Banda­ríkj­unum sjaldan verið meiri en nú. Gíf­ur­lega hröð aukn­ing í notkun lækna­dóps af ýmsum toga, og verk­smiðju­fram­leiddra efna, hefur leitt til þess að þess að dauðs­föllum vegna of stórs skammts af efnum hefur fjölgað hratt. 

Í fyrra dóu 64 þús­und manns vegna of stórs skammts og hefur Banda­ríkja­for­seti, Don­ald Trump, lýst því yfir að stjórn­völd muni vinna náið með borgum og sveit­ar­stjórnum að því að hjálpa fíklum og reyna að draga úr vand­an­um. 

Sér­stak­lega hefur dauðs­föllum vegna lækna­dóps fjölg­að, og má þar sér­stak­lega nefna dauð­daga vegna notk­unar á Fent­anyl efn­inu, en á þremur árum hefur aukn­ing dauð­daga vegna þess verið 540 pró­sent.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent