Segir Vinstri græn hafa ákveðið að veita Sjálfstæðisflokknum uppreist æru

Formaður Miðflokksins rýnir í stjórnarmyndunarviðræður og segir að eftir allar þær hástemmdu yfirlýsingarnar um hið óstjórntæka íhald hafi VG nú ákveðið að veita Sjálfstæðisflokknum uppreist æru.

Sigmundur Davíð Guðlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sigmundur Davíð Guðlaugsson, formaður Miðflokksins.
Auglýsing

„Eftir allar hástemmdu yfir­lýs­ing­arnar um hið óstjórn­tæka íhald hefur Vg nú ákveðið að veita Sjálf­stæð­is­flokknum upp­reist æru. Af fréttum að dæma virð­ist Vg auk þess ætla að leyfa for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins að verða ráð­herra í rík­is­stjórn­inni þrátt fyrir fyrri efa­semdir þar um. Þó virð­ist alls ekki víst að hann fái að halda utan um efna­hags­málin í fjár­mála­ráðu­neyt­in­u,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins í grein á síðu flokks­ins í dag. 

Hann segir að margt hafi verið sér­kenni­legt við yfir­stand­andi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­ur. Skýr­ingar hafi feng­ist á sumu en annað verði sífellt und­ar­legra. Allt sé þetta áhuga­vert fyrir áhuga­menn um stjórn­mál.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður standa nú yfir en for­menn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna fund­uðu fram á kvöld í gær um myndun rík­is­stjórn­ar. Áður höfðu for­menn­irnir fundað með for­ystu­fólki vinnu­mark­að­ar­ins, ASÍ og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins til þess að fá yfir­sýn yfir þá stöðu sem við blasir í kjara­við­ræð­um. Þetta kemur fram í frétt RÚV í morg­un. 

Auglýsing

„Komið hefur í ljós að við­ræður vinstri­flokk­anna voru ekki bara leik­sýn­ing af hálfu Fram­sókn­ar­flokks­ins heldur Vg líka.

Það liggur líka fyrir að stjórn­ar­mynstrið er sér­stakt áhuga­mál flokks­eig­enda flokk­anna þriggja. Sumir þeirra reyndu með öllum til­tækum ráðum að koma á sams konar stjórn fyrir ári. Við­ur­nefnið „flokks­eig­enda­stjórn­in“ er ekki úr lausu lofti grip­ið. Menn í þessum flokkum telja slíka rík­is­stjórn best til þess fallna að efla þá hags­muni sem eru þeim kær­ast­ir. Þar skjátl­ast þeim lík­lega ekki,“ segir Sig­mundur Davíð í grein sinn­i. 

Hann segir jafn­framt að ljóst sé að starf­andi for­menn flokk­anna þriggja þurfi allir á því að halda að kom­ast í rík­is­stjórn til að halda velli, þ.e. kom­ast hjá því að verða settir af eða deyja (póli­tískt) úr leið­ind­um. Óleyst sé þó gátan um einkar óvenju­lega hegðun Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„For­maður flokks­ins þráir nú að kom­ast í rík­is­stjórn með fólki sem hefur um langt skeið kallað hann glæpa­mann og öðrum verri nöfn­um. Hann leit­ast við að koma til valda fólki sem gekk hart fram við að reyna að koma fyrr­ver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra í fang­elsi, ásamt fjár­mála­ráð­herra flokks­ins. Auk þess áformar hann að brjóta blað með því að gera sós­í­alista að for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi í fyrsta skipti. Full ástæða verður til að óska Katrínu Jak­obs­dóttur til ham­ingju með að ná þessum áfanga og að hafa tek­ist ætl­un­ar­verkið með því að beygja bæði gras­rót eigin flokks og allan Sjálf­stæð­is­flokk­inn sam­tím­is. Það er ekki lítið afrek,“ segir hann. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent