Morgunblaðið birtir í dag símtal milli þáverandi formanns Seðlabanka Íslands, Davíðs Oddssonar, og þáverandi forsætisráðherra, Geirs H. Haarde, sem átti sér stað 6. október 2008. Í símtalinu ræða þeir neyðarlánalánveitingu til Kaupþings upp á 500 milljónir evra, sem kostaði íslenska skattgreiðendur á endanum 35 milljarða króna í tap.
Aðilar máls hafa hingað til ekki viljað birta símtalið, sem fór fram fyrir rúmum níu árum síðan og er um einn þýðingarmesta atburð í nútíma hagsögu sem hefði haft í för með sér afdrifaríkar afleiðingar fyrir íslenskan almenning.
Kjarninn miðlar, móðurfélag Kjarnans, stefndi í síðasta mánuði Seðlabanka Íslands og fór fram á að ógilt yrði með dómi sú ákvörðun bankans að hafna kröfu Kjarnans um aðgang að hljóðritun og afritum af símtalinu.
Birt í blaðinu sem Davíð stýrir
Davíð Oddsson er í dag ritstjóri Morgunblaðsins og þar er símtalið birt í heild sinni. Um málið er einnig fjallað í forsíðufrétt og þar er því haldið fram að hvorki Davíð né Geir hafi vitað að símtalið var tekið upp.
Bjuggust ekki við því að fá peninganna til baka
Í símtalinu rekja Davíð og Geir stöðuna eins og hún var og ræða um að það sé einungis hægt að lána Kaupþingi. Það muni þýða að bæði Landsbankinn og Glitnir falli nær samstundis.
Davíð útskýrir fyrir Geir að ef Seðlabanki Íslands geti „skrapað saman 500 milljónum evra“ fyrir Kaupþing séu þeir „komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaupþingi í einhverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Landsbankanum líka, sko.“
Davíð spyr svo Geir hvort að hann sé að tala um að það eigi frekar að reyna að hjálpa Kaupþingi. Geir svarar: „ Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gærkvöldi allavega þessir Morgan menn.“
Davíð segir honum þá að hann búist ekki við því að fá peninganna til baka. „Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósannindi eða við skulum segja óskhyggja.“
Þeir ræða svo hinn danska FIH banka sem tekinn var sem veð fyrir láninu og Davíð segir að án góðra veða myndi bankinn aldrei lána þessa fjármuni. Hann bætir svo við: „Við megum ekki setja íslenska ríkið á galeiðuna.“
Geir svarar:„Nei, nei þetta eru 100 milljarðar, spítalinn og Sundabrautin.“
Þar á Geir við að þarna sé verið að eyða hinum svokölluðu Símapeningum, en ríkið fékk um 67 milljarðar króna þegar það seldi Símann til Exista árið 2005. Stór hluti þeirra peninga, um 18 milljarðar króna, voru eyrnamerktir nýju hátæknisjúkrahúsi en einungis brot af þeirri upphæð, um 700 milljónir króna, rataði þangað. Þá áttu einnig að fara um 15 milljarðar króna í samgöngubætur á borð við lagningu Sundabrautar.
Segir fjölmarga hafa haft samtalið undir höndum
Davíð fjallar einnig um símtalið í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins. Þar segir hann meðal annars frá því að þegar fjárlaganefnd hafi fjallað um hugsanlega birtingu símtalsins á sínum tíma, undir forystu Björns Vals Gíslasonar, þá hafi hann, fyrrverandi seðlabankastjórinn, aldrei verið boðaður fyrir nefndina.„ Hann var þó annar af aðeins tveimur sem örugglega vissi eitthvað um þetta samtal. Hvers vegna var hann aldrei boðaður? Var það vegna þess að hann hefði aðeins þurft að stoppa í fimm mínútur til að segja að sjálfsagt væri að birta þetta samtal. Fjölmargir aðilar hafa haft það undir höndum. Sumir í endurritaðri hljóðupptöku og aðrir í uppskrift. Það er merkilegt á tímum, þegar svo mörgu ómerkilegu er lekið að þetta stutta samtal hafi ekki birst.“
Davíð segir að samtalið sé ekki sú sprengja sem menn voru búnir að ímynda sér og að það sé augljóst af því að hann hafi ekki verið meðvitaður um að samtalið var tekið upp. Þá hefði hann verið fágaðri í talmáli sínu en á einum stað í samtalinu segir Davíð til að mynda að „við erum að fara alveg niður að rassgati.“ „Annað sem augljóst er að þarna er um framhaldssamtal tveggja manna að ræða, sem þekkst hafa í áratugi. Það þriðja er að bankastjórinn hefur miklar efasemdir um að bankinn, sem lánið fái, sé að segja satt um það, að hann muni endurgreiða lánið innan nokkurra daga. Þess vegna megi alls ekki lána honum nema mjög öruggt veð fáist (það var á endanum allsherjarveð, sem skipti máli). Þannig veð að bankinn og ríkissjóður standi óskaddaðir eftir þótt lántakandinn svíki allt sem hann geti svikið.“
Samtalið í heild sinni eins og það er birt í Morgunblaðinu í morgun:
Davíð Oddsson seðlabankastjóri: Halló.
Ritari Geirs H. Haarde forsætisráðherra: Gjörðu svo vel.
Davíð: Halló.
Geir: Sæll vertu.
Davíð: Sæll það sem ég ætlaði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 milljónir evra en náttúrlega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaupþingi í einhverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Landsbankanum líka, sko.Geir: Nei.Davíð: Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaupþingi.Geir: Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gærkvöldi allavega þessir Morgan menn.Davíð: Ég býst við því að við fáum ekki þessa peninga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósannindi eða við skulum segja óskhyggja.Geir: En eru þeir ekki með einhver veð?Davíð: Við myndum aldrei lána það og við ætlum að bjóða þetta gegn 100% veði í FIH banka.Geir: Já.Davíð: Og þá verðum við að vita að sá banki sé veðbandalaus.Geir: Já.Davíð: Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeiðuna.Geir: Nei, nei þetta eru 100 milljarðar, spítalinn og Sundabrautin.Davíð: Já, já ert þú ekki sammála því að við verðum að gera ýtrustu kröfur?Geir: Jú, jú.Davíð: Já.Geir: Ég held að þeir muni leggja mikið á sig til að reyna samt að að uppfylla þær, sko.Davíð: Já, já, já, já það er bara eina hættan er sú að þeir séu búnir að veðsetja bréfin og þá geta þeir ekki gert þetta, sko.Geir: Já, já og hvað myndum við koma með í staðinn?Davíð: Ja, það veit ég ekki, þá verðum við bara að horfa á það en það, við erum bara að tala um ýtrustu veð, erum að fara með okkur inn að beini þannig að við verðum að vera algjörlega öruggir.Geir: En er Landsbankinn ekki með neitt slíkt sem hann geti látið okkur hafa?Davíð: Já, en þá er að við erum ekki með pening í þetta. Við erum að fara alveg niður að rassgati og við ætlum meira að segja að draga á Danina sem ég talaði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.Geir: Já.Davíð: En við erum búnir að tala við bankastjórana þar og þeir eru að íhuga að fara yfir þetta.Geir: Um.Davíð: Það tekur tvo til þrjá daga að komast í gegn.Geir: Já.Davíð: En við myndum skrapa, Kaupþing þarf þetta í dag til að fara ekki á hausinn.Geir: Já, en það er spurning með þá, fer þá Landsbankinn í dag?Davíð: Já, þá myndi hann fara í dag á hausinn væntanlega.Geir: Og Glitnir á morgun?Davíð: Og Glitnir á morgun.Geir: Já.Davíð: Landsbankanum verður væntanlega lokað í dag bara.Geir: Já.Davíð: Við vitum ekki, reyndar vitum við ekki hvort það er árás á Kaupþing Edge. Við gerum ráð fyrir því þeir hafa ekki sagt okkur það ennþá.Geir: Er það á Icesave?Davíð: Það eru farnar 380 milljónir út af Icesave punda og það eru bara 80 milljarðar.Geir: Þeir ráða aldrei við það, sko.Davíð: Nei, þeir ráða aldrei við neitt af því, sko, en þetta er það besta leiðin ef við getum afskrifað allar skuldir þjóðarinnar þó að það muni valda vandræðum í Evrópu þá en þeir bara hjálpuðu okkur ekki neitt þannig að það er ha...Geir: Já, já.Davíð: Þannig að þetta er nú...Geir: Heyrðu, ég var að spá í að halda hérna fund klukkan eitt og ætlaði að biðja þig að koma þangað annað hvort einan eða með þeim sem þú vilt hafa með með öllum formönnum stjórnmálaflokkanna.Davíð: OK.Geir: Og Fjármálaeftirlitinu?Davíð: Já.Geir: Til að fara yfir þetta og...Davíð: En það, getur þú ekki haft það Jónas ekki Jón Sigurðsson það er óeðlilegt að...Geir: Jónas, hann var hjá okkur í morgun.Davíð: Og hvað ertu að hugsa um að?Geir: Ég myndi vilja að það yrði farið í fyrsta lagi yfir frumvarpið án þess kannski að afhenda þeim það en...Davíð: En hvað mega menn vera einlægir?Geir: Ég er búinn að vera mjög einlægur við þá.Davíð: Já.Geir: Ég er eiginlega búinn að segja þeim þetta allt.Davíð: OK.Geir: Ég segi bara að við erum bara hérna að tala hérna saman í fyllstu einlægni um alvarlegustu vandamál sem upp hafa komið í þjóðfélaginu og ég treysti ykkur til að fara ekki með það.Davíð: Já, já.Geir: Og það hafa þeir virt held ég ennþá.Davíð: Ja, þeir hafa sagt einhverjum af örugglega en það er bara, þú getur aldrei haldið lokinu.Geir: Nei.Davíð: Fastara en þetta á.Geir: Nei, en...Davíð: Klukkan eitt eða hvað?Geir: Bara hérna hjá mér í ríkisstjórnarherberginu.Davíð: Hérna niðri í stjórnarráði?Geir: Já.Davíð: OK.Geir: Spursmálið er svo hérna...Davíð: Ég kem bara einn held ég, það er betra að vera þarna fámennt en fjölmennt.Geir: Já og þá myndum við fara almennt yfir heildarmyndina.Davíð: Já.Geir: Og af hverju þessi lög eru nauðsynleg.Davíð: Já, já.Geir: Og svo er ég að plana það þannig að lögin verði orðin að lögum um sjöleytið, mælt fyrir þeim klukkan fjögur, þingflokksfundir klukkan þrjú og það ætti að skapa okkur rými til þess að...Davíð: Mælt fyrir þeim klukkan fjögur?Geir: Já.Davíð: OK.Geir: Já, er það ekki rétti tíminn?Davíð: Jú, jú, jú, jú, jú, jú.Geir: Ég er búinn að undirbúa það að þetta geti fengið hraða afgreiðslu og þeir...Davíð: Já, já.Geir: Hafa haft góð orð um það.Davíð: Fínt er.Geir: OK bless, bless.Davíð: Bless.