Flokksráð Vinstri grænna búið að samþykkja myndun nýrrar ríkisstjórnar

Flokksráð Vinstri grænna er búið að samþykkja stjórnarsáttmála komandi ríkisstjórnar. 81 prósent sagði já. Því er leiðin greið fyrir Katrínu Jakobsdóttur að mynda stjórnina formlega á morgun.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Flokks­ráð Vinstri grænna sam­þykkti nú í kvöld að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dótt­ur. Stjórn­ar­sátt­máli vænt­an­legrar rík­is­stjórnar var kynntur á fundi á Grand hótel í kvöld og svo var kosið um rík­is­stjórn­ar­sam­starf sem myndað yrði um þann sátt­mála. 81 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já við samn­ingn­um.

Alls geiddu 93 atkvæði og af þeim sögðu 75 já. 15 sögðu nei og þrír seðlar voru auð­ir. Katrín Jak­obs­dóttir þakk­aði fund­ar­mönnum í kjöl­farið fyrir góðar og hrein­skiptar um­ræður og mik­il­væg rök með og á móti. Í til­kynn­ingu kemur fram að nokkrir félags­menn hafi kvatt Vinstri græn vegna sam­starfs­ins. Hátt í 200 manns sóttu fund­inn í kvöld.

Andrés Ingi Jóns­­son og Rósa Björk Brynj­­ólfs­dótt­ir, þing­­menn Vinstri grænna, greindu frá því fyrr á fund­inum að þau styðji ekki rík­­is­­stjórn­­­ar­­sam­­starf Vinstri grænna, Fram­­sóknar og Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins.

Auglýsing

Andrés Ingi sagði í ræðu sinni á flokks­ráðs­fundi flokks­ins í kvöld, þar sem hann færði rök fyrir ákvörðun sinni um að styðja ekki stjórn­­­ar­­sam­­starf­ið, að hann ótt­ist að flokk­­ur­inn yrði of „samdauna“ sam­­starfs­­flokk­un­um, og gæti ekki haft næg­i­­lega mikil áhrif.

Hann sagði auk þess að margt í stjórn­­­ar­sátt­­mál­­anum væri of líkt því sem frá­­far­andi rík­­is­­stjórn hafi verið með í sínum sátt­­mála, og það sé ekki eitt­hvað sem Vinstri græn geti sætt sig við.

Í ræðu sinni sagði hann að text­inn sem tengd­ist umfjöllun um skatta­­mál hefði allt eins geta komið frá Við­­skipta­ráði en Vinstri græn­­um.

Sjálf­­stæð­is­­menn sam­­þykktu stjórn­­­ar­­sam­­starfið ein­róma fyrir sitt leyti fyrr í kvöld. Mið­­stjórn Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins er enn að funda um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent