Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ráðið Iðunni Garðarsdóttur aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Iðunn er fædd í Reykjavík árið 1989. Hún er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlið, lauk BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 2013, BA-prófi í lögfræði frá sama skóla árið 2015 og meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands vorið 2017. Iðunn hefur starfað sem lögfræðingur hjá lögmannsstofunni Juris en lætur nú af störfum þar til að gegna starfi aðstoðarmanns.
Iðunn var virk í starfi Röskvu innan Háskóla Íslands, var formaður félagsins árin 2012-2013 og sat í Stúdentaráði og Háskólaráði fyrir hönd fylkingarinnar. Hún situr í málnefnd Háskóla Íslands.
Iðunn var fyrsti varaþingmaður VG í Reykjavík norður á síðastliðnu þingi og situr í flokksráði Vinstrihreyfinginnar - græns framboðs.
Iðunn er í sambandi með Skúla Arnlaugssyni.
Sömu aðstoðarmenn eru hjá ráðherrum Sjálfstæðisflokksins og í fyrri ríkissjórn en Kristján Þór Júlíusson á eftir að ráða sinn aðstoðarmann.
Lísa Kristjánsdóttir og Bergþóra Benediktsdóttir voru ráðnar aðstoðarmenn Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, eins og kom fram í frétt Kjarnans á dögunum.