Stjórnarandstaðan hefur ákveðið að taka að sér formennsku í þeim þremur fastanefndum Alþingis sem ríkisstjórnin bauð þeim. Þær eru stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins, velferðarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd. Stjórnarandstöðuflokkarnir funduðu um málið í morgun.
Frá þessu er greint í frétt mbl.is.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Miðflokksins, staðfesti þetta í samtali við mbl.is. Miðflokkurinn tekur við formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd, Samfylkingin í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Píratar í velferðarnefnd. Tveir síðarnefndu flokkarnir ætla hins vegar að skiptast á nefndarformennsku á miðju kjörtímabilinu, segir í fréttinni.
„Við ákváðum að taka þessar nefndir sem ríkisstjórnarflokkarnir skömmtuðu okkur en við erum auðvitað ósátt við það að ekkert annað var til umræðu. Það var nóg af fögrum orðum en síðan bara orðin tóm. Við óskuðum eftir því að fá fjórðu nefndina eða fá að skipta á nefndum en það var ekki hægt,“ segir hann.
Segir jafnframt í fréttinni að ekki hafi verið gengið endanlega frá formennsku í þremur alþjóðanefndum sem stjórnarandstöðunni býðst né tilnefningu hennar í ákveðin embætti varaformanna.