Landsvirkjun og Elkem Ísland, sem rekur kísilver á Grundartanga, hafa verið í samningaviðræðum vegna framlengingar rafmagnssamnings á milli fyrirtækjanna, og er nú niðurstaðan sú að samningur verður framlengdur um tíu ár en gerðardómur mun ákveða verðið á framlengingartímanum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun.
Núgildandi rafmagnssamningur milli fyrirtækjanna er frá árinu 1975 en verksmiðjan hóf rekstur árið 1979 og gildir samningurinn til ársins 2019.
Í núgildandi samningi er ákvæði sem heimilar Elkem að framlengja samninginn um 10 ár og vísa ákvörðun um rafmagnsverð til gerðardóms.
Elkem hefur nýtt sér þessa heimild og hefur rafmagnssamningur milli fyrirtækjanna því verið framlengdur til ársins 2029. Fyrirtækin hafa komið sér saman um skipan gerðardómsins sem mun ákveða rafmagnsverðið á framlengingartímanum, að því er segir í tilkynningunni.
Elkem er fjórði stærsti viðskiptavinur Landsvirkjunar og er samningurinn um 127 MW af afli og 1.035 GWst. Þetta samsvarar um átta prósentum af heildarviðskiptum Landsvirkjunar, miðað við stöðu mála samkvæmt ársreikningi félagsins í fyrra.