Pressan tekin til gjaldþrotaskipta

Fjölmiðlafyrirtækið Pressan ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta.

Björn Ingi
Auglýsing

Pressan ehf. hefur verið tekin til gjald­þrota­skipta. Krist­ján B. Thor­lacius hefur verið skip­aður skipta­stjóri í búinu en það stað­festir hann í sam­tali við frétta­stofu Vís­is.

Krafan um að félagið yrði tekið til gjald­þrota­skipta kemur frá Líf­eyr­is­sjóði Vest­manna­eyja sam­kvæmt Krist­jáni, en Stundin greindi einnig frá því í gær. Skuldir eru þó við munu fleiri, eins og komið hefur fram hjá nýrri stjórn, en Ómar R. Vald­irmars­son, hdl., er for­maður stjórnar félags­ins. Aðrir í stjórn eru Matth­ías Björns­son og Þor­varður Gunn­ars­son.

Eins og fram hefur kom­ið, þá er grunur uppi um lög­brot í starf­semi félags­ins, og hefur ný stjórn kært Björn Inga Hrafns­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­mann og stóran hlut­hafa Pressunn­ar, til Hér­aðs­sak­sókn­ara vegna lög­brota. Málin eru nú í rann­sókn.

Auglýsing

Krist­ján segir í sam­tali við Vísi að hann muni á næst­unni setja sig inn í mál­efni félags­ins, og sinna hefð­bundnum störfum skipta­stjóra. 

Í til­kynn­ingu sem ný stjórn Pressunnar sendi frá sér á dög­un­um, þegar hún tók við, kom fram að það yrði verk­efni nýrrar stjórnar verði að glöggva sig á fjár­­hag félags­­ins og með­­­ferð fjár­­muna. Eftir það verði hægt að taka ákvörðun um hvort félagið verður gefið upp til skipta, og meta hvort atvik hafi verið með þeim hætti að vísa þurfi málum til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara og gruns um lög­­brot.

Það var gert, og var mál­efnum sem snéru að skatt­legri með­ferð, vísað til skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Í til­kynn­ingu sagð­i: Stjórn Press­unar hefur nú undir höndum gögn sem sýna umtals­verðar skuldir við opin­bera aðila, líf­eyr­is­­sjóði og almenna kröf­u­hafa. Frá­­far­andi stjórn Press­unar hefur ekki getað upp­­lýst eig­endur og nýja stjórn­­­ar­­menn félags­­ins um hvernig félag­inu verði gert kleift að standa við sínar skuld­bind­ing­­ar. Skuldir Press­unar og tengdra félaga við Toll­­stjóra vegna opin­berra gjalda nema um 150 millj­­ónum króna auk umtals­verða van­skila ann­­arra kröf­u­hafa. Eins og fjallað hefur verið um í fjöl­miðlum voru nán­­ast allar eignir Pressunnar ehf. og DV ehf. seldar til Frjálsrar Fjöl­mið­l­unar ehf. þann 5. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn. 

Ný stjórn félags­­ins hefur þá kaup­­samn­inga undir höndum þar sem meðal ann­­ars kemur fram að kaup­verð er greitt með yfir­­­töku á kröfu frá­­far­andi stjórn­­­ar­­for­­manns á félagið að fjár­­hæð 80.000.000 króna auk yfir­­­töku á hand­völdum skuldum félag­anna þar sem Björn Ingi Hrafns­­son er í per­­són­u­­legum ábyrgð­­um. Þetta ásamt öðrum atrið­um, sem nánar verður gerð grein fyrir síð­­­ar, hefur gert það að verkum að legið hefur fyrir grunur um að ekki hafi ein­ungis verið mis­­farið með fjár­­muni félag­anna heldur hafi kröf­u­höfum félag­anna einnig verið mis­­munað í bága við lög,“ segir til­­kynn­ingu hinnar nýju stjórn­­­ar. Fjár­­­fest­inga­­fé­lagið Dal­­ur­inn ehf. er eig­andi að 68,27% hlut í Press­unni og hefur lagt umtals­verða fjár­­muni til rekst­­urs Press­unar og tengdra félaga. Fyrr­ver­andi stjórn­­­ar­­for­­maður Press­unar og fyrrum útgef­andi hefur ítrekað haft í hót­­unum við stjórn­­­ar­­menn Dals­ins. Fel­­ast þær hót­­­anir meðal ann­­ars í skrifum um ein­staka hlut­hafa Dals­ins sem lekið skal til fjöl­miðla, sem eru byggðar meðal ann­­ars á gögnum og rök­­semd­­ar­­færslum sem not­aðar voru af Novator í til­­hæfu­­lausum mála­­ferlum við sömu aðila. Þá hefur ítrekað verið reynt að kom­­ast hjá því að halda hlut­hafa­fundi þrátt fyrir ósk stærsta hlut­hafa þannig að leita þurfti til ráð­herra til að þvinga boðun fund­­ar­ins. Þetta gefur til kynna að fyrrum stjórn­­­ar­­mönnum og stjórn­­endum Pressunnar sé umhugað um að eig­endur félags­­ins og opin­berir aðilar kom­ist ekki yfir fjár­­hags­­legar upp­­lýs­ing­­ar,“ segir í til­­kynn­ing­unni.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent