Lífeyrissjóður verzlunarmanna telur kaupauka til stjórnenda og stjórnarmanna Klakka umfram eðlileg viðmið og ekki í samræmi við þau sjónarmið sem starfskjarastefna sjóðsins byggir á. Lífeyrissjóðurinn var hins vegar ekki í neinni stöðu til að hindra samþykkt starfskjarastefnunnar þar sem hann á einungis óverulegan hlut í Klakka.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum í dag.
Mikið hefur verið fjallað um ofurbónusa stjórnenda og stjórnarmanna Klakka, sem áður hét Exista, og heldur utan um 100 prósenta hlut í eignaleigufyrirtækinu Lykli, áður Lýsing. Þau geta fengið samanlagt um 550 milljónir króna í bónus í tengslum við væntanlega sölu á Lykli og vegna annarra eigna félagsins sem hafa verið seldar á síðustu árum.
Tilkynningin í heild sinni:
„Umfangsmiklar bónusgreiðslur í óþökk Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Lífeyrissjóði verzlunarmanna (LV) þykir miður þau sjónarmið sem komið hafa fram í fjölmiðlum um að sjóðurinn hafi ekki sinnt eðlilegri hagsmunagæslu fyrir sjóðfélaga þegar ákveðnar voru kaupaukagreiðslur til stjórnenda og stjórnar Klakka. Meginmarkmið LV er fyrst og fremst að leitast eftir sem bestri ávöxtun á eignir sjóðfélaga til að geta greitt sem traustastan lífeyri. Í því hefur honum orðið vel ágengt á undanförnum árum. Fyrir liggur að LV hafði ekkert afl til að breyta þeirri ákvörðun sem tekin var af hálfu mikils meirihluta hluthafa Klakka.
Á hluthafafundi Klakka þann 11. desember 2017 var samþykkt starfskjarastefna fyrir félagið sem felur í sér möguleika á kaupaukagreiðslum til starfsmanna og stjórnarmanna sem geta numið vel rúmum 500 milljónum króna.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna telur kaupauka sem þennan umfram eðlileg viðmið og ekki í samræmi við þau sjónarmið sem starfskjarastefna sjóðsins byggir á. Lífeyrissjóðurinn var hins vegar ekki í neinni stöðu til að hindra samþykkt starfskjarastefnunnar þar sem hann á einungis óverulegan hlut í Klakka.
Eignahlutur LV í Klakka nemur um 1,5% af hlutafé félagsins og er bókfærður á um 47 milljónir króna hjá lífeyrissjóðnum. Hér er því um að ræða hlut sem nemur einungis um 0,007% af um 650 milljarða eignasafni LV. Til viðbótar eiga nokkrir aðrir lífeyrissjóðir um 4 til 5% eignahlut eins og fram hefur komið í fréttum.
Eignahlutur LV er til kominn vegna úrvinnslu á búi Exista hf. sem lauk með umfangsmiklum nauðasamningum og því er ekki um hefðbundna fjárfestingareign að ræða. Eins og fram hefur komið í tilkynningu frá Klakka eru ríflega 80% hlutafjár Klakka beint eða óbeint í eigu erlendra aðila. Þeir hafi alfarið átt frumkvæðið að hinu umdeilda kaupaukakerfi. Þá er vert að nefna að kaupaukakerfið naut ekki stuðnings þess fulltrúa í stjórn Klakka sem LV og fleiri lífeyrissjóðir tilnefndu til stjórnarsetu.“