Undanfarin ár hafa umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið greiðslu í desember til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur. Þær greiðslur hafa ekki verið vegna reglu þar um, enda engar slíkar til staðar, heldur hefur verið tekin ákvörðun hverju sinni.
Í tilkynningu frá ríkisstjórninni segir að nú njóti 518 umsækjendur um alþjóðlega vernd þjónustu hjá Útlendingastofnun og sveitarfélögunum Reykjavík, Reykjanesbæ og Hafnarfirði. Af þessum 518 eru 403 fullorðnir einstaklingar og 114 börn.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það sé ánægjulegt að ríkisstjórnin hafi getað brugðist við með þessum hætti. „Mér finnst afar mikilvægt að mál sem þessi séu í föstum farvegi til framtíðar litið þannig að ekki skapist óvissa eða mismunun frá einu ári til annars og við munum í framhaldinu vinna að því að það verði gert.“
Þeim hælisleitendum sem eru í þjónustu sveitarfélaga eða Útlendingastofnunar hefur fækkað mikið á þessu ári. Þeir voru 820 í byrjun desember 2016 en eru nú, líkt og áður sagði, 518. Það þýðir að hælisleitendum sem eru á forræði ríkis eða sveitarfélaga hefur fækkað um tæpan þriðjung á einu ári.