Stjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir gríðarlegum vonbrigðum með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. Skorað er á þingheim að standa við gefin loforð með því að gera strax mannsæmandi breytingar á framlögðu fjárlagafrumvarpi og leiðrétta kjör örorkulífeyrisþega.
Í fyrsta lagi telja þau að hækka þurfi óskertan lífeyri almannatrygginga verulega og í öðru lagi að afnema verði krónu-á-móti-krónu skerðingu sérstakrar framfærsluuppbótar.
Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Öryrkjabandalags Íslands vegna fjárlagafrumvarps ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2018 eftir neyðarfund þann 18. desember 2017.
Í greinargerð Öryrkjabandalags Íslands segir að kjör meginþorra lífeyrisþega hafi rýrnað á síðustu árum. Þrátt fyrir loforð hafi kjaragliðnun fyrri ára ekki verið leiðrétt. Þvert á móti hafi hún aukist. Frá 2013 hafi óskertur lífeyrir almannatrygginga hækkað mun minna en hækkun lágmarks- og meðallauna.
Enn fremur er greint frá því að frá árinu 2010 hafi kaupmáttur launa aukist stöðugt ár frá ári. Hjá örorkulífeyrisþegum hafi þróunin verið með allt öðrum hætti. Kaupmáttur heildartekna þeirra hafi rýrnað flest árin og lítið breyst síðustu tvö ár. Þá hafi byrði vegna húsnæðiskostnaðar, sem var mjög íþyngjandi fyrir, aukist enn meira með gríðarlegum hækkunum.
Þau benda á að fyrir alþingiskosningar 2016 og 2017 hafi loforð verið gefin um að bæta kjör örorkulífeyrisþega en ekkert hafi bólað á efndum.
„Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018 er ætlunin að hækka greiðslur til lífeyrisþega um 4,7%. Í krónutölum myndi það þýða að óskertur lífeyrir almannatrygginga myndi fara úr tæpum 228 þús. kr. í rúmar 238 þús. kr. Eftir skatt yrði hækkunin í kringum 6.700 kr. á mánuði. Þessi uppfærsla myndi sáralitlu breyta fyrir fólk með lágar tekjur, sem mun áfram þurfa að velta hverri krónu fyrir sér.
Ljóst er að framfærsla örorkulífeyrisþega gerir þeim ekki kleift að lifa mannsæmandi lífi og er fólki haldið í fátæktargildru. Tekjuskerðingar eru verulegar þrátt fyrir lágar tekjur. Allar skattskyldar tekjur yfir eina krónu á mánuði skerða sérstöku framfærsluuppbótina krónu- á- móti- krónu, sem örorku- og endurhæfingar- lífeyrisþegar með lægstu tekjurnar eru með.
Gert er ráð fyrir að ríkissjóður skili 48 milljarða króna afgangi á fjárlögum. Þrátt fyrir það eru engin áform sjáanleg hjá stjórnvöldum um að draga úr tekjuskerðingum eða afnema „krónu- á -móti- krónu“ skerðingar hjá örorkulífeyrisþegum.
Ekkert um okkur án okkar!“ segir í ályktuninni.