Markmiðið er að rafmagnsbíllinn verði fyrsta val

Framkvæmdastjóri ON segir að í framtíðinni verði krafa fólks um að hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla við hótel landsins jafn sjálfsögð og að hafa WiFi-tengingu á herberginu.

on hraðhleðsla.jpg
Auglýsing

Lang­tíma­mark­mið ON er að raf­magns­bíll­inn verði fyrsta val fólks. Þetta segir Bjarni Már Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins. Hann segir ábyrgða­leysi af fjöl­skyldum sem reka tvo bíla að hafa annan bíl­inn ekki raf­magns­bíl.

ON stefnir á að opna fjórar nýjar hleðslu­stöðv­ar, eða hlöð­ur, á næstu mán­uðum sem mun gera það að verkum að hægt verður að keyra hring­veg­inn á raf­magns­bíl­um. Alls voru ell­efu nýjar hlöður settar upp 2017 og stefnt er á svipað magn árið 2018. Að opna hring­veg­inn er eitt skref í gera raf­magns­bíl­inn fýsi­legan kost fyrir alla.

Auglýsing
Bjarni segir að draum­ur­inn sé að raf­magns­bíll­inn verði fyrsta val, ekki bara hjá Íslend­ingum heldur einnig hjá ferða­mönn­unum og trúir hann því að það muni bæta ímynd lands­ins. Hann segir að í fram­tíð­inni verði krafa fólks um hleðslu­stöðvar við hótel lands­ins jafn almenn og að hafa WiFi-teng­ingu á her­berg­inu.

40% ódýr­ara að nota raf­magns­bíl 

1 febr­úar n.k. verður tekið upp gjald á hrað­hleðslu­stöðvum lands­ins. Þá mun kosta 39 kr á mín­útu að hlaða bíl­inn, eða um 400 - 600 krónur  fyrir algenga notk­un. Hingað til hefur þjón­ustan verið ókeypis en kostn­að­ur­inn mið­ast við spár um notkun raf­bíla í fram­tíð­inni. Eins og er er notkun hleðslu­stöðv­anna heldur ófyr­ir­sjá­an­leg en það er draum­ur­inn að geta lækkað verðið með auk­inni notkun hlað­anna, segir Bjarni.

Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri ON. Mynd: on.isBjarni nefnir að þó rukkað sé fyrir mín­út­una sé það enn tölu­vert ódýr­ara en að reka bens­ín­bíl. Að keyra 50.000km á WV Golf bens­ín­bíl kostar um 800.000 krónur auk um 200.000 krónur í smurn­ingu og við­hald.

Sama vega­lengd á raf­magns­bíl sem ein­göngu er hlað­inn á hrað­hleðslu­stöðvum kostar um 600.000 krónur eða 40% minna.

Bjarni bendir á að það þurfi að hugsa um hrað­hleðslu­stöðvar eins og leigu­bíl. Þjón­ustu sem er í boði en þó ávallt betra að nota ódýru leið­ina, sem er að hlaða bíl­inn heima hjá sér og í vinn­unni.

Nýtt app á leið­inni

Nýtt og not­enda­vænna app er í bígerð hja ON og felst bæt­ingin á app­inu í því að geta þjón­u­stað við­skipta­vini bet­ur. Bjarni segir að helstu trufl­anir á stöðv­unum sé að þær eru að slá út, þá helst vegna þess að fólk kann ekki nógu vel á þær. Þá verði hægt að senda mynd í gegn um appið og fá nákvæma leið­sögn. Einnig verður hægt að fara inn á mínar síður þar sem m.a. er hægt að skoða greiðslu­yf­ir­lit.

Mis­mun­andi bílar taka mis­mun­andi hleðslu­tæki og hægt er að sía út upp­lýs­ingar fyrir hvern og einn not­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent