Færri fertugir og yngri í toppstöðum í viðskiptalífinu en áður

Góð samskipti hafa valið 40 eftirtektarverðustu stjórnendur landsins 40 ára og yngri.

viðskipti
Auglýsing

Góð sam­skipti hafa valið 40 eft­ir­tekt­ar­verð­ustu stjórn­endur lands­ins 40 ára og yngri. 

Athygli vekur að með­al­aldur íslenskra stjórn­enda hefur farið hækk­and­i. Eitt af því sem kom í ljós þegar leitað var eftir til­nefn­ingum á list­ann er að leið fólks í æðstu stjórn­enda­stöður á Íslandi virð­ist hafa verið að lengj­ast á síð­ustu árum. 

Þeir sem lögðu til til­nefn­ingar á list­ann voru sam­mála um að áber­andi færri 40 ára og yngri séu æðstu stjórn­endur stærstu fyr­ir­tækja lands­ins í dag en fyrir tíu árum síð­an. 

Auglýsing

List­inn er val­inn sam­kvæmt til­nefn­ingum álits­gjafa úr við­skipta­líf­inu. Ungir stjórn­endur í fyr­ir­tækjum með alþjóð­lega starf­semi, eins og Össur og Mar­el, eru áber­andi á list­an­um. Eng­inn for­stjóri fyr­ir­tækis í Kaup­höll Íslands komst á list­ann þar sem þeir eru allir eldri en 40 ára.

Í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu segir að þetta sé í fyrsta sinn sem fyr­ir­tækið tekur saman slíkan lista en til­gang­ur­inn sé að lyfta fólki sem hefur verið að standa sig vel í því vanda­sama hlut­verki að vera stjórn­andi en einnig til að gefa vís­bend­ingu um hverjir gætu átt eftir að taka við æðstu stöðum í íslenskum fyr­ir­tækjum á næstu árum. 

Valið teng­ist hlið­ar­starf­semi Góðra sam­skipta sem felst í svo­kall­aðri stjórn­enda­leit þar sem leitað er beint til fólks um að taka að sér stjórn­un­ar­störf í fyr­ir­tækj­um, sem þegar er í góðu starfi og því ólík­legt til að bregð­ast við atvinnu­aug­lýs­ing­um.

Valið á 40/40 list­ann fór þannig fram að óskað var eftir til­nefn­ingum frá fólki sem þekkir vel til í við­skipta­líf­inu og síðan voru 20 ein­stak­lingar af hvoru kyni valdir úr þeim nöfnum sem bár­ust. Í til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins segir enn fremur að þó end­an­legt val list­ans byggi að miklu leyti á hug­lægu mati og sé aðal­lega til gam­ans gert þá hafi verið stuðst við ákveðna mæli­kvarða eins og árangur innan stórra fyr­ir­tækja, umfang ábyrgð­ar, traust sem við­kom­andi ein­stak­lingar njóta hjá stjórn og æðstu stjórn­endum og manna­for­ráð. Ein­göngu hafi verið horft til stjórn­enda íslenskra fyr­ir­tækja, en ekki stjórn­enda hjá hinu opin­bera eða þeirra sem stýra eigin fyr­ir­tækj­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent