Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, sagði í Kastljósi RÚV í kvöld að niðurstaða Hæstaréttar í Landsréttarmálinu svokallaða hefði verið „áfall“ fyrir hana persónulega.
Hún ítrekaði svo það sem fram hefur komið áður, að vinna væri nú hafin við að endurskoða ferlið við að velja dómara í íslensku dómskerfi.
Hún sagði það liggja fyrir, að hún væri ósammála niðurstöðu Hæstaréttar, og að það sýndi sig kannski best á því að þessi mál hefðu farið inn á borð Hæstaréttar þar sem ágreiningur hefði verið um málið.
Eins og kunnugt er komst Hæstiréttur að þeirri niðustöðu að Sigríður hefði sem dómsmálaráðherra brotið gegn stjórnsýslulögum þegar skipaðir voru fimmtán dómarar við Landsrétt. Fjórar breytingar voru gerðar á listanum yfir þá hæfustu sem kom frá dómnefndinni.
Ástráður Haraldsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, voru færðir niður á listanum, og einnig Eiríkur Jónsson og Jón Höskuldsson. Þeir tveir síðarnefndu eru nú með í undirbúningi skaðabótamál á hendur ráðherra og ríkinu vegna málsins.
Líka deilt um héraðsdómara
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti átta héraðsdómara hefur svarað bréfi setts dómsmálaráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þar sem nefndin áréttar að nefndin lúti ekki boðvaldi ráðherra, heldur sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd.
Bréfið var birt á vefnum í gær, eftir að Kjarninn hafði fjallað um innihald þess.
Guðlaugur sendi nefndinni bréf í kjölfar umsögn hennar um hvaða átta umsækjendur hún telur hæfasta til að gegna embættum héraðsdómara.
Taldi ráðherra að við lestur umsagnarinnar og andmæla sem bárust frá 23 umsækjendum hefðu vaknað ýmsar spurningar um hvernig mati og málsmeðferð nefndarinnar var háttað.
Í svari nefndarinnar er meðal annars spurningum ráðherra í tíu töluliðum svarað. Ráðherra gerði meðal annars athugasemdir við að dómnefndin hefði ekki notast við stigatöflu til þess að raða umsækjendum, líkt og gert var í umsögn um þá sem sóttu um stöður við Landsrétt.
Þau gögn voru birt á vef Kjarnans, þegar málið var til meðferðar hjá Alþingi, og sjá má þau hér að neðan.
Nefndin segir tæki dómnefndar, þar á meðal töluleg samlagningartæki eins og „excel“, mismunandi og ráðist meðal annars af fjölda umsækjenda og samsetningu umsækjendahópsins. Slíkar töflur hafi ekki verið notaðar í störfum nefndarinnar fyrr en í Landsréttarumsögninni.
Nefndin setti upp töflu til grófflokkunar umsækjenda sem hún telur vera vinnuskjal sem ekki verður afhent.
Í bréfinu er sérstaklega vísað í nýfallinn dóm Hæstaréttar þar sem umsækjanda um embætti dómara við Landsrétt voru veittar miskabætur vegna þess að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra var talinn hafa brotið reglur þegar hún vék frá áliti dómnefndarinnar varðandi veitingu dómaraembættanna.
Í dómnum segir að lagasetning um dómnefndina hafi haft það að markmiði að styrkja sjálfstæði dómstóla og auka traust almennings á því að dómarar væru óháðir valdhöfum framkvæmdavalds. Efnislega sömu reglur hafi verið teknar upp í lög um dómstóla, þar sem rannsóknarskyldu stjórnsýslulaga hafi verið að verulegu leyti létt af ráðherra við skipun í embætti héraðsdómara og skyldan þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dómnefndar sem skipuð var með tilliti til þess að tryggt yrði að sérþekking væri þar fyrir hendi um mat á hæfni umsækjenda um dómaraembætti.
Guðlaugur fer með málið þar sem Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra telst til þess vanhæf þar sem einn umsækjenda um embætti héraðsdómara er sá sem hún var talin hafa brotið gegn í áðurnefndum dómi. Sá, Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður, fékk dæmdar 700 þúsund krónur í miskabætur vegna brots dómsmálaráðherra.